Fækkar í hópi reykingafólks 5. janúar 2010 05:00
Talsvert dró úr reykingum Íslendinga á árinu 2009 og er svo komið að líklega hefur aldrei lægra hlutfall landsmanna reykt. Samkvæmt nýlegri könnun Capacent fyrir Lýðheilsustöð reykja rúmlega fimmtán prósent landsmanna á aldrinum 15 til 89 ára daglega. Jafnt og þétt hefur dregið úr reykingum frá 1991 en þá reyktu um 30 prósent þjóðarinnar. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að dregið hafi úr tóbakssölu fyrstu ellefu mánuði ársins. Endanlegar sölutölur ársins 2009 liggja ekki fyrir. Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð, þakkar þessa þróun vitundarvakningu um skaðsemi reykinga. Fólk geri sér sífellt betur grein fyrir hve hættulegar reykingar eru heilsunni. Þá kunni hækkað verð á tóbaki að hafa sitt að segja en helsta ráðlegging Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og Alþjóðabankans til að sporna við reykingum sé að hækka verð á tóbaki. Í heilbrigðisáætlun sem samþykkt var á Alþingi 2001 og nær til ársins 2010 var sett það markmið að hlutfall reykingafólks á aldrinum 18-69 ára verði undir fimmtán prósentum. Ljóst er að það markmið hefur náðst. Viðar kveðst ekki vilja segja til um hver markmið nýrrar heilbrigðisáætlunar eigi að vera en mikilvægt sé að halda áfram á sömu braut. Til að svo geti orðið þurfi að fjölga úrræðum til að hjálpa fólki til að hætta að reykja og koma í veg fyrir að unglingar hefji reykingar. - bþs
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira