Ríkið verndar þá fjársterku 6. maí 2010 05:15 Ríkisstjórn Íslands lýsti því yfir 6. október 2008 að innstæður í bönkum og sparisjóðum væru tryggðar að fullu en ekki einungis miðað við um það bil tveggja milljóna króna eign eins og skylt var.
Hefði ríkisstjórn Geirs H. Haarde miðað hámarksvernd innstæðna í bönkum og sparisjóðum við fimm milljónir króna hefði inneign 95 prósent einstaklinga og 90 prósent lögaðila verið tryggð að fullu. Þetta hefði falið í sér 555 milljarða króna skuldbindingu. Full vernd allra innstæðna fól hins vegar í sér 2.318 milljarða króna skuldbindingu fyrir ríkið, miðað við upplýsingar sem fyrir lágu í maí 2008. Tveir þriðju hlutar af þeirri skuldbindingu fólust í því að vernda innstæður tveggja prósenta einstaklinga og sjö prósenta fyrirtækja sem áttu meira en 10 milljónir króna, eða samtals um 1.763 milljarða króna. Þessar upplýsingar er að finna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Útreikningarnir voru lagðir fyrir fund samráðshóps þriggja ráðuneyta, Seðlabanka og Fjármálaeftirlits 9. maí árið 2008 og byggðust á stöðu innlána í september 2007. Samkvæmt tilskipun ESB var aðeins skylt að tryggja innstæður upp að 20.887 evrum, sem svaraði til um 1,7 milljóna króna í maí 2008. Ríkisstjórn Íslands tryggði innstæður að fullu með yfirlýsingu sem gefin var út 6. október 2008. Í 17. kafla rannsóknarskýrslunnar eru tekin dæmi um vernd á innstæðum. Ef hámarksvernd hefði miðast við átta milljónir króna hefðu 97 prósent einstaklinga, sem voru eigendur 67 prósent af heildarinnstæðum, og 92 prósent fyrirtækja, sem voru eigendur 8 prósent af heildarinnstæðum, fallið þar undir. Tíu milljóna króna vernd hefði náð yfir allar innstæður 98 prósent einstaklinga og 67 prósent af heildarfjárhæðinni. Um 93 prósent inneigna lögaðila hefði verið tryggð að fullu. Verndin hefði hins vegar náð yfir 8 prósent af heildarinnstæðum þeirra. Það hefði falið í sér 732 milljarða króna hámarksskuldbindingu; 467 milljarða til einstaklinga en 84,8 milljarða til lögaðila. Ekki var veitt sérstök lagaheimild til þessarar skuldbindingar. Óljóst er hver kostnaður ríkisins af þessum ábyrgðum verður þar sem uppgjöri banka og sparisjóða er ólokið. -pg
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Sjá meira