Dómsmál gegn Svandísi þingfest í dag 4. maí 2010 12:25 Flóahreppur krefst þess að ákvörðun ráðherra, um að hafna skipulagi Urriðafossvirkjunar, verði dæmd ógild, og óskar jafnframt eftir flýtimeðferð.
Dómsmál sem Flóahreppur höfðar gegn Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Flóahreppur krefst þess að ákvörðun ráðherra, um að hafna skipulagi Urriðafossvirkjunar, verði dæmd ógild, og óskar jafnframt eftir flýtimeðferð. Það var í lok janúarmánaðar sem Svandís tilkynnti Flóahreppi að hún hygðist synja staðfestingar þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps sem sneri að Urriðafossvirkjun og voru rök ráðherrans þau að Landsvirkjun hefði greitt hreppnum fyrir skipulagsvinnu. Óskar Sigurðsson hæstaréttarlögmaður segir hins vegar í stefnu sinni fyrir hönd Flóahrepps að ákvörðun ráðherrans sé haldin formlegum og efnislegum annmörkum og sé óframkvæmanleg. Hún eigi sér hvorki stoð í skipulags- og byggingarlögum, - lög banni ekki framkvæmdaraðila að greiða hluta af kostnaði vegna aðalskipulagsvinnu. Þá hafi ráðherra brotið gegn lögmæltum andmæla- og upplýsingarétti Flóahrepps en einnig brotið jafnræðisreglu og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Óskað er flýtimeðferðar þar sem ákvörðun ráðherrans komi ekki aðeins í veg fyrir Urriðafossvirkjun heldur allar aðrar framkvæmdir í sveitarfélaginu auk þess sem hún hafi í för með sér gjörbreytingu á starfsháttum sveitarstjórna um land allt. Því hafi það verulega almenna þýðingu að fá niðurstöðu sem fyrst fyrir dómstólum um hvort lagatúlkun ráðherrans standist.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Sjá meira