Lífið

Ein af útvöldum á A-lista Calvin Klein

Katie Holmes. MYND/Cover Media
Katie Holmes. MYND/Cover Media

Leikkonan Katie Holmes, sem varð heimsþekkt fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Dawson Creek á sínum tíma, er í dag ein áhrifamesta kona heims þegar kemur að tísku. Hún er yfir sig hrifin af einfaldleikanum sem einkennir fatnað frá Calvin Klein.

Katie og yfirhönnuður kvennalínu Calvin Klein, Francisco Costa, eru mikilir vinir en þau kynntust áður en hún féll fyrir eiginmanni sínum, leikaranum Tom Cruise.

„Ég elska Calvin Klein og mig langar í allt sem þeir eru með fyrir næsta ár. Ég er sérstaklega hrifin af einfaldleikanum og litirnir eru mér líka að skapi," sagði Katie.

Katie er á svokölluðum A-lista þegar kemur að sýningum Calvin Klein. Þá býðst henni ásamt fleiri útvöldum að sitja á fremsta bekk þegar nýjungar vörumerkisins eru kynntar. Á umræddum lista eru einnig Julianne Moore, Kerry Washington og Isabel Lucas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.