Spila í norskum morgunþætti 4. september 2010 00:01 Hljómsveitin kemur fram í norska morgunþættinum God Morgen Norge á sjónvarpsstöðinni TV2.
Hljómsveitin Hjaltalín kemur fram í norska morgunþættinum God morgen Norge á sjónvarpsstöðinni TV2 8. september. Þetta verður í annað sinn sem sveitin treður þar upp en síðast var hún gestur í þættinum fyrir tveimur árum. „Það var mjög gaman. Þetta var rosa fyndið því þetta var svo brjálæðislega snemma morguns. Það var mæting fyrir allar aldir en það var bara allt í lagi,“ segir söngkonan Sigríður Thorlacius um síðustu heimsókn Hjaltalíns í þáttinn. God morgen Norge er einn vinsælasti sjónvarpsþáttur Noregs og þykir svipa nokkuð til hins íslenska Kastljóss. Um afar góða kynningu er að ræða fyrir Hjaltalín sem er þessa dagana að kynna plötu sína, Terminal, erlendis. Hún ætlar að nýta ferðina til Noregs til tónleikahalds í Osló, Árhúsum og í Kaupmannahöfn þar sem lög af plötunni verða spiluð, þar á meðal Sweet Impressions sem nýlega kom út sem stafræn smáskífa. Terminal hefur hlotið góða dóma á Norðurlöndum, rétt eins og annars staðar. Platan fékk 5 af 6 mögulegum í einkunn bæði í danska blaðinu Politikien og í Bergenavisen í Noregi. Hér heima var platan valin sú besta á síðasta ári af tónlistarspekúlöntum Fréttablaðsins. -fb
Mest lesið Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Lífið samstarf Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Sjá meira