Lífið

Borgfirðingar veita verðlaun

Guðmundur Böðvarsson
Guðmundur Böðvarsson
Gerður Kristný og Sögufélag Borgfirðinga hlutu ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar og Borgfirsk menningarverðlaun, sem veitt voru í sjöunda sinn í Reykholti á sunnudag. Minningarsjóður Guðmundar Böðvarssonar, skálds og bónda á Kirkjubóli, og Ingibjargar Sigurðardóttur, konu hans, veitir verðlaunin. Að sjóðnum standa Rithöfundasamband Íslands, Ungmennasamband Borgarfjarðar, Samband borgfirskra kvenna, Búnaðarsamtök Vesturlands og afkomendur þeirra hjóna. Sögufélag Borgfirðinga, sem hlaut menningarverðlaunin, hefur senn lokið útgáfu á Borgfirzkum æviskrám í 14 bindum. Snorri Þorsteinsson formaður Sögufélags Borgfirðinga veitti verðlaununum viðtöku. Gerður Kristný Guðjónsdóttir, sem hlaut ljóðaverðlaunin, las úr væntanlegri ljóðabók sinni að afhendingunni lokinni. Það er skammt stórra högga á milli hjá Gerði, en í liðinni viku hlaut hún vestnorrænu barnabókaverðlaunin.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.