Lífið

Hélt framhjá því hjónabandið var ófullnægjandi

LeAnn Rimes. MYND/Cover Media
LeAnn Rimes. MYND/Cover Media

Söngkonan LeAnn Rimes, 28 ára, hélt fram hjá eiginmanni sínum því hjónabandið var ófullnægjandi að hennar mati.

Aðdáendur söngkonunnar fengu vægt áfall þegar í ljós kom að hún hélt við leikarann Eddie Cibrian þegar þau léku saman í kvikmynd árið 2008.

Nú hefur LeAnn rætt opinskátt um framhjáhaldið og hvað fékk hana til að vera ótrú eiginmanni sínum. Hún segist hafa verið allt of ung þegar hún gifti sig og sambandið var ekki eins og hún hafði gert sér í hugarlund þegar hún játaðist manninum aðeins nítján ára gömul.

„Samband mitt við þáverandi eiginmann minn var fullkomlega ófullnægjandi fyrir okkur bæði," sagði LeAnn.

„Ég var nítján ára og hann tuttugu og eins árs þegar við giftum okkur. Síðan þroskuðumst við í sitthvora áttina."

Í dag býr LeAnn með fyrrnefndum Eddie og tveimur sonum hans frá fyrra hjónabandi. Mason, sjö ára og Jake, þriggja ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.