Sigríður Klingenberg spáði fyrir Karli Gústaf Svíakóngi 4. september 2010 10:00 Sigríður Klingenberg spáði fyrir Karli Gústavi Svíakonungi á dögunum. Hún hefur á ferli sínum spáð fyrir fjölda fólks, þar á meðal Placido Domingo og Harry Belafonte.
Spákonan Sigríður Klingenberg var fengin til að spá fyrir Karli Gústavi Svíakonungi á meðan hann dvaldi á Hótel Rangá á dögunum. Þau hittust í litlum glersal á hótelinu og ræddu saman í vel á fjórðu klukkustund. Fullt tungl var þennan dag, 24. ágúst, og gekk fundurinn svo vel að þau hittust aftur daginn eftir á hótelinu og áttu annað spjall. Sigríður spáði einnig fyrir föruneyti Karls, sem samanstóð af fjölda áhrifamanna í Svíþjóð, þar á meðal yfirmanni hjá sænska hernum. Sigríður vildi ekkert tjá sig um málið þegar Fréttablaðið ræddi við hana en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins spáði hún í augun á Svíakonungi og gaf honum íslenskan Baggalúts-kraftaverkastein. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var Karl Gústav hér á landi í einkaerindum. Hann renndi fyrir lax í Rangá, skoðaði sig um undir Eyjafjöllum og endaði dvöl sína með góðu partíi á skemmtistaðnum Austur sem hann hafði látið taka frá fyrir sig fimmtudagskvöldið 26. ágúst. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var Sigríður Klingenberg á meðal gesta á Austur og ein þeirra sem skáluðu með kónginum í kampavíni. Sigríður Klingenberg hefur lengi verið í fararbroddi á meðal íslenskra spákvenna. Fyrir tveimur árum setti hún heimsmet þegar hún spáði fyrir 198 manns í flugvél á leið frá Keflavík til Kaupmannnahafnar. Hún hefur spáð fyrir fjölda frægra einstaklinga og nægir þar að nefna stórtenórinn Placido Domingo sem hún hitti tvívegis, bæði í Barcelona og heima á Íslandi, í tengslum við tónleika hans í Egilshöll árið 2005. Hún spáði einnig fyrir söngvaranum Harry Belafonte þegar hann kom hingað til lands fyrir sex árum á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. freyr@frettabladid.is f f f
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira