70 þúsund lentu í rafmagnsleysi 8. maí 2010 12:11
Áætla má að um 70 þúsund íbúar landsbyggðarinnar, allt frá Vesturlandi og norður til Austfjarða, hafi mátt þola rafmagnsleysi í allt að tvær klukkustundir í gærkvöldi. Bilunin var það víðtæk að Almannavarnir og Fjarskiptamiðstöð lögreglu sáu ástæðu til að koma að málum. Rafmagnið sló út klukkan 20.51 í gærkvöldi, og varð þá rafmagnslaust á stórum hluta Íslands, allt frá Hvalfirði og austur til Djúpavogs. Aðeins suðvesturhornið og sunnanvert landið austur til Hornafjarðar sluppu, sem og Húsavík og aðrir tengdir Laxárvirkjun. Þá voru Vestfirðir fljótir að komast inn aftur. Á Akureyri var rafmagnslaust í um tvær klukkustundir og þar stöðvuðust bíósýningar í báðum kvikmyndahúsum bæjarins. Símasamband sló víða út sem og útvarpssendar og var mikið álag á Neyðarlínunni og raforkufyrirtækjunum þegar fólk leitaði skýringa. Hjá Landsneti eru menn enn að kanna hvað gerðist, og segja að farið hafi af stað keðjuverkandi útleysing á byggðalínukerfinu. Þórhallur Hrafnsson, starfsmaður Landsnets, segir erfitt að benda á einhvern einn orsakaþátt en segir að svo virðist sem rekja megi upphafið til truflunar í tengivirki á Brennimel í Hvalfirði. Rafmagn var almennt komið á aftur um ellefuleytið í gærkvöldi.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Fleiri fréttir Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Sjá meira