Jennifer Lopez tekur við dómarasætinu í Idol 3. ágúst 2010 11:00 Allt bendir til að Jennifer Lopez taki við dómarasætinu af Ellen DeGeneres í sjónvarpsþáttunum American Idol. nordicphotos/afp
Allt stefnir í að leik- og söngkonan Jennifer Lopez taki við dómarasætinu af Ellen DeGeneres í sjónvarpsþáttunum vinsælu American Idol. Leik- og söngkonan Jennifer Lopez hefur verið í samningaviðræðum við sjónvarpsstöðina Fox um að taka við dómarasætinu af Ellen DeGeneres í sjónvarpsþáttunum vinsælu American Idol. Spjallþáttastjórnandinn DeGeneres er hætt í þáttunum eftir aðeins eitt ár um borð. Hún var með fimm ára samning í vasanum en hefur nú óvænt sagt bless við Idolið. „Fyrir nokkrum mánuðum lét ég Fox og framleiðendur American Idol vita af því að mér fannst þættirnir ekki henta mér,“ sagði DeGeneres. Hún bætti við að þrátt fyrir að hún hefði gaman af að uppgötva ungt hæfileikafólk og hlúa að því, væri erfitt að dæma fólk og stundum særa tilfinningar þess. DeGeneres hafði verið gagnrýnd fyrir að hafa lítið vit á tónlistarbransanum og hennar þátttöku í þáttunum var líkt við hlutverk klappstýru á fótboltaleikjum. Stutt er síðan aðaldómari American Idol, Simon Cowell, ákvað að hætta eftir níu þáttaraðir til að einbeita sér að bandarísku útgáfunni af X-Factor. Óvíst er hver kemur í staðinn fyrir hann. Margir hafa verið nefndir til sögunnar, þar á meðal söngvararnir Elton John, Justin Timberlake, Steven Tyler úr Aerosmith og Harry Connick Jr. Fyrrverandi framleiðandi Idolsins, Nigel Lythgoe, hefur einnig verið nefndur, annaðhvort sem hugsanlegur framleiðandi eða jafnvel dómari. Hann hefur verið í dómnefnd hinna vinsælu þátta So You Think You Can Dance. Haft hefur verið eftir hinum 61 árs Lythgoe að snúi hann aftur sem framleiðandi American Idol muni hann losa sig við alla dómnefndina úr síðustu þáttaröð. Auk brotthvarfs DeGeneres er óvíst hver framtíð dómaranna Kara DioGuardi og Randy Jackson verður. Tveggja ára samningur DioGuardi er útrunninn og orðrómur er uppi um að hún hafi þegar verið rekin og að Steven Tyler muni taka hennar sæti. Framleiðendur American Idol eru sagðir vilja yngja upp í dómarateyminu í von um að laða yngri áhorfendur að þáttunum. Aðdáendur Idolsins hafa smám saman verið að eldast og vilja framleiðendurnir ná til yngri áhorfenda. Vinsældir American Idol hafa dalað undanfarin ár. Samt sem áður hafa þættirnir verið þeir vinsælustu í Bandaríkjunum síðustu sjö ár. Alls sáu rúmar 24 milljónir lokaþáttinn í vor þar sem Lee DeWyze og Chrystal Bowersox börðust um sigur. 29 milljónir horfðu aftur á móti á úrslitaeinvígið í fyrra. Tökur á tíundu þáttaröð American Idol hefjast í september og þurfa framleiðendurnir að hafa hraðann á og ákveða hverjir skipa hina endanlegu dómnefnd.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira