Heim úr brúðkaupsferð 27. júlí 2010 07:00 Orlando Bloom og Miranda Kerr eru komin heim til Los Angeles eftir brúðkaupsferð til eyjarinnar Anguilla.
Leikarinn Orlando Bloom og undirfatafyrirsætan Miranda Kerr eru nýkomin heim til Los Angeles úr brúðkaupsferð til eyjarinnar Anguilla í Karabíahafi. Papparassar sátu um Orlando Bloom og Miröndu Kerr þegar þau komu brosandi heim úr brúðkaupsferðinni frá Anguilla á sunnudaginn. Bæði voru þau að sjálfsögðu með brúðkaupshringa á fingrunum, auk þess sem Kerr, sem er 27 ára, skartaði risastórum demantshring. Brúðkaup þeirra á dögunum var leynilegt, fjarri sviðsljósi fjölmiðlanna. Aðeins mánuður er síðan hinn 33 ára Bloom bar upp bónorðið eftir að hafa fengið leyfi frá foreldrum hennar, samkvæmt fornum sið. Móðir Kerr segir tengdason sinn sannan herramann og er hæstánægð með uppátækið. „Orlando sýndi hversu mikill herramaður hann er með því að fylgja hefðinni og biðja um hönd Miröndu. Við hikuðum ekki við að samþykkja beiðnina," sagði Therese Kerr. „Þau eru æðislegt par. Þau eru mjög ástfangin og ná að laða fram það besta hvort hjá öðru. Við höfum alltaf óskað þess að börnin okkar séu heilbrigð og hamingjusöm og Miranda hefur aldrei verið heilbrigðari og hamingjusamari." Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tengdafjölskylda Bloom hrósar honum í hástert því stutt er síðan Ann Kerr, amma Miröndu, lýsti yfir ánægju sinni með Hollywood-hjartaknúsarann. „Við erum mjög ánægð fyrir hennar hönd. Þegar við erum öll saman sé ég hve hann veitir Miröndu mikla athygli. Hann hlýtur að vera indælispiltur því annars væri Miranda ekki með honum. Ég óska þeim alls hins besta. Hún er alveg yndisleg frá toppi til táar," sagði Ann Kerr. Bloom og Kerr byrjuðu saman seint á árinu 2007 eftir að Kerr hafði ítrekað neitað að láta Bloom fá símanúmerið sitt vegna þess að hún var þá að hitta annan mann. Þau sáust fyrst saman opinberlega í apríl 2008 og síðan þá hafa þau verið mynduð við hin ýmsu tækifæri, enda afar glæsilegt par að margra mati. Kerr er á meðal tíu tekjuhæstu fyrirsæta í heiminum og Orlando leikur næst í ævintýramyndinni Skytturnar þrjár sem kemur út á næsta ári.
Mest lesið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Lífið Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Lífið Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ Lífið Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið Lively og Baldoni náðu sáttum Lífið Fleiri fréttir Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Gráhærð og aldrei glæsilegri Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins miðaldra Mætti með sextán ára gamalt prump bróður síns „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Sjá meira