Lífið

Dauðfegin að vera hætt að djamma

Lily Allen tekur óléttunni af æðruleysi.
Lily Allen tekur óléttunni af æðruleysi.

Breska söngkonan Lily Allen segist fegin að hún sé hætt að drekka vegna þess að hún hafi áttað sig á því hversu leiðinleg hún væri drukkin. Lily, sem er 25 ára gömul, er ólétt af sínu fyrsta barni. Faðir barnsins er kærasti hennar, Sam Cooper.

Lily hefur hingað til verið þekkt fyrir að vera frekar trylltur stuðpinni. Hún drakk í óhófi og reykti. Hún segir óléttuna hinsvegar hafa opnað augu sín fyrir löstum skemmtanahaldsins. Hún hafi jafnvel áttað sig á raunsönnu eðli sumra djammfélaganna.

„Ég þarf ennþá að vera í kringum sumt lið sem ég hékk með. Og þegar ég sé þá drukkna velti ég því fyrir mér hvort þeir hagi sér virkilega svona þegar þeir eru drukknir?" segir Lily sem tekur óléttunni af æðruleysi.

Sjálf fagnar hún breytingum á líkamanum. Hún óttast ekki að tútna út heldur hlakkar til. Hún segist aldrei hafa verið með jafn stór brjóst og hana hlakki til að klæða sig í kynæsandi óléttunærföt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.