Frægir í partí á Skuggabar 16. desember 2010 09:00 DJ Margeir er á meðal þeirra sem koma fram í partíi á Skuggabar Hótel Borgar annað kvöld. Partíið er aðeins fyrir boðsgesti.
Heilsudrykkurinn Vitamin Water verður fáanlegur á landinu á næstunni. Drykkurinn verður kynntur til leiks annað kvöld í partíi á gamla Skuggabarnum á Hótel Borg, sem verður opnaður á ný sérstaklega fyrir þetta kvöld. Leynd hvílir yfir partíinu og Vífilfellsmenn, sem dreifa Vitamin Water hér á landi, fást ekki til að tjá sig um það. Þá hefur það ekkert verið auglýst og þær litlu upplýsingar sem fást um partíið eru í boðskorti sem ýmsir nafntogaðir einstaklingar hafa fengið sent. Fréttablaðið hefur komist yfir eitt slíkt, en þar kemur fram að tónlistin verði í höndum DJ Margeirs og Jóns Atla, sem kallar sig Sexy Lazer. Þá koma fram Captain Fufano og Gnúsi Yones. Ásamt því að bjóða upp á skemmtiatriði verður opinn bar allt kvöldið. Gestalistinn telur 400 manns eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. Á honum er að finna þekkt fólk úr flestum menningarkimum landsins. Enginn kemst inn án miða og þeir eru ekki fleiri en 400 – þetta ku vera afar strangt. Vitamin Water á sér stutta en nokkuð merkilega sögu. Rapparinn 50 Cent eignaðist hlut í framleiðandanum Glacéau árið 2007 þegar fyrirtækið nefndi Vitamin Water bragðtegund eftir rapparanum. Coca Cola Company tók yfir fyrirtækið skömmu síðar og 50 Cent þénaði 100 milljón dali á sölunni – 11,5 milljarða íslenskra króna á núvirði. Hann hefur síðar látið hafa eftir sér að hann hafi þénað þessa 100 milljón dali með því að mæta í eina myndatöku fyrir Vitamin Water.- afb
Mest lesið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Fleiri fréttir Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Sjá meira