Stórstjörnurnar vilja taka þátt í Glee-æðinu 7. júní 2010 17:48 GLEE hefur göngu sína aftur í kvöld á Stöð2. Þættirnir eru æðislegir.
GLEE, einn vinsælasti þátturinn í heiminum í dag, hefur göngu sína aftur í kvöld á Stöð 2. Nýju þættirnir verða að sjálfsögðu uppfullir af þekktum lögum og segir sagan að stærstu poppstjörnur heims sláist um að koma lögum sínum að enda slá þau undantekningarlaust í gegn og seljast í bílförmum, einkum á iTunes-vefnum. Engin önnur en Madonna óskaði sérstaklega eftir að fá að tengjast þættinum og var þeirri beiðni hennar að sjálfsögðu tekið opnum örmum og mun Glee-hópurinn syngja hvorki fleiri né færri en 10 af vinsælustu lögum poppdrottningarinnar í þættinum í næstu viku. Ekki nóg með það heldur hefur poppprinsessan Lady GaGa einnig gefið leyfi fyrir því að hennar lög verði notuð í þáttunum. Í þætti kvöldsins verða meðal annars sungin lög eftir Bítlana en það hefur aldrei gerst áður að svo margir þekktir tónlistarmenn leyfi notkun á lögum sínum. Ástæðan er einföld. Það eru allir að græða á tá og fingri því fátt selst betur hjá Itunes og öðrum tónlistarnetsölum en lögin úr Glee - og þeir sem mest græða á því eru höfundar laganna. Þannig hafa liðsmenn hljómsveitarinnar Journey, sem sömdu og gerðu frægt lagið „Don't Stop Believin'" snemma á 9. áratugnum, látið hafa eftir sér að þeir hafi grætt margfalt meira á útgáfunni sem hljómaði í fyrsta Glee-þættinum heldur en þeir nokkru sinni gerðu á sinni eigin útgáfu. Nú þegar hafa verið gefnar út þrjár plötur með lögunum úr Glee og þær hafa allar náð efsta sæti bandaríska sölulistans auk þess sem sala á iTunes á lögunum er komin vel á þriðju milljón. Þá átti Glee-hópurinn 25 lög á Billboard-lagalistanum sem er það mesta sem nokkur hefur afrekað á einu ári síðan Bítlarnir komu 31 lagi á sama vinsældarlista árið 1964.
Mest lesið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlist Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira