Dansflokkurinn á ráslínu 7. september 2010 16:00 Transaquania Fyrsta verk vetrarins er sjálfstætt framhald af hinu óvenjulega verki Transaquania – Out of the Blue sem Íslenski dansflokkurinn sýndi í Bláa lóninu í apríl 2009.
Erna Ómarsdóttir og William Shakespeare eru meðal höfunda verka sem Íslenski dansflokkurinn sýnir í vetur. Katrín Hall, listrænn stjórnandi flokksins, segir veg danslistar fara sífellt vaxandi á Íslandi og merkir aukinn áhuga hjá yngri áhorfendum og körlum. Fyrsta sýning vetrarins heitir Transaquania – into thin Air og verður frumsýnd 7. október. Þetta er framhaldssýning af Transaquania – out of the blue eftir Ernu Ómarsdóttur, Damien Jalet og Gabríelu Friðriksdóttur, sem sýnt var í Bláa lóninu í apríl 2009. „Sú sýning heppnaðist það vel að við ákváðum að halda áfram að vinna með kynjaveröldina sem var búin til þarna,“ segir Katrín Hall, listrænn stjórnandi ÍD. Gert er ráð fyrir átta sýningum hér á landi. „En það er aldrei að vita hvort hún fari á flakk erlendis,“ bætir Katrín við. „Ég og markaðsstjórinn hjá ÍD vorum nýlega á dansmessu í Dusseldorf, þar sem við kynntum meðal annars þetta verk og það vakti mikla athygli þar. Við sjáum hvað setur með framhaldið.“Litháenskur ShakespeareKatrín HallUm áramót leiða ÍD og Leikfélag Reykjavíkur saman hesta sína í uppfærslu á Ofviðri Shakespeares í leikstjórn Litháans Oscaras Korsunovas. „Þetta verður mjög stór og sjónræn sýning,“ segir Katrín. „Korsunovas hefur getið sér orð fyrir sérstakar sýningar og afgerandi stíl. Þetta verður mjög spennandi og ögrandi sýning fyrir dansarana og spennandi fyrir ÍD og LR að starfa saman á þessum vettvangi.“ Í mars verður efnt til danshátíðarinnar Sinnum þrír þar sem boðið verður upp á þrjú verk á einu kvöldi; nýtt verk eftir Jo Strömgren, höfund Kvart, Heilabrot eftir tvíeykið Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur og White for Decay eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Flokkurinn rekur smiðshöggið á starfsárið með sýningu í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í apríl. „Við höfum farið reglulega til Akureyrar undanfarin ár,“ segir Katrín, „en hlökkum sérstaklega til að sýna í Hofi. Loksins fáum við meira pláss þannig að ég á von á því að geta farið með örlítið umfangsmeiri sýningu, fjölskyldusýningu sem höfðar til breiðs aldurshóps.“Uppbyggingarstarf að skila sérAð sögn Katrínar fer vegur danslistar á Íslandi vaxandi, sem má meðal annars merkja í aukinni aðsókn, auk þess sem eftirspurn eftir sýningum ÍD erlendis sé sífellt að aukast. „Áhorfendhópurinn er aðeins að breytast, fleiri yngri áhorfendur eru að koma á sýningar og fleiri karlar. En auðvitað viljum við alltaf frá fleiri áhorfendur. Ég held að þetta sé fyrst og fremst afleiðing af því góða starfi sem hefur verið unnið innan dansheimsins hér á landi undanfarin ár sem og stofnunar listdansdeildar innan LHÍ. Þetta er ung listgrein hér á landi, sem tekur tíma að byggja upp. Það uppbyggingarstarf er smám saman að skila sér í auknum áhuga hérlendis og orðspori okkar á erlendum vettvangi.“ Nánari upplýsingar um vetrardagskrá Íslenska dansflokksins má finna á id.is.bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira