Pétur Jóhann vill Jón Gnarr í Fjörðinn 7. júní 2010 08:30 Pétur Jóhann og Jón Gnarr léku eitt eftirminnilegasta sjónvarpspar seinni tíma, þá Ólaf Ragnar og Georg Bjarnfreðarson. „
Mér líst bara vel á þetta, ég bý náttúrlega í Hafnarfirði þannig að þetta kemur mér í sjálfu sér ekkert við,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon. Hann sá það fyrir að Besta flokknum myndi ganga jafnvel og raun bar vitni því það sé einfaldlega í eðli Jóns að gera hlutina af fullum krafti, alltaf. Jón Gnarr sest í borgarstjórastólinn þann 15.júní og það kemur Pétri Jóhanni ekkert ofsalega mikið á óvart. „Jón langaði einu sinni í myndavél þegar við vorum að gera vaktarseríurnar. Hann meðhöndlaði allar myndavélar sem hann komst í, hjá tökuliðinu, búningafólkinu. Og spurði alla hver væri besta myndavélin. Þegar hann svo loksins fékk sér myndavél sjálfur þá var hún auðvitað langflottust,“ útskýrir Pétur og bætir við að hið sama hafi átt við þegar verðandi borgarstjóri uppgötvaði að Bjarkarlundur, hótelið þar sem Dagvaktin var tekinn upp, væri netlaus. „Hann linnti ekki látum fyrr en að það var komið netsamband.“ Pétur og Jón léku sennilega eitt eftirminnilegasta sjónvarpspar Íslandssögunnar, hnakkann Ólaf Ragnar og sérvitringinnn Georg Bjarnfreðarson. Ein af eftirminnilegustu senum þáttaraðanna er án nokkurs vafa þegar Georg les yfir hausamótunum á Ólafi fyrir að hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn gegn pizzum og bjór. Pétur Jóhann segist óska þess að Jón Gnarri fari með Besta flokkinn í útrás um allt land. „Hann væri allavega fínn bæjarstjóri Hafnarfirði, kannski bara sem landsstjóri yfir öllu landinu.“-fgg
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira