Hin mörgu andlit Christinu Aguilera 10. júní 2010 17:30 Sykursæt og saklaus þegar ferillinn var að hefjast árið 1999. Mynd/AFP
Bandaríska söngkonan Christina Aguilera, reynir að hressa rækilega upp á ímyndina á sinni fjórðu hljóðversplötu, Bionic, sem er nýkomin út. Síðasta plata Christinu Aguilera, Back To Basic, fékk ágætis dóma hjá gagnrýnendum og er til að mynda hæst allra platna hennar í einkunn á síðunni Metacritic.com. Þar söng hún sálar-, djass- og blúslög í anda þeirra tónlistarmanna sem höfðu áhrif á hana í æsku. Platan seldist þó ekki nægilega vel, sérstaklega í heimalandinu og í Kanada þar sem einungis 1,7 milljónir eintaka fóru yfir búðarborðið. Það er lítið á mælikvarða Aguilera því fyrsta plata hennar seldist í tæplega 8,2 milljónum eintaka.Hálfnakin og ögrandi Aguilera uppi á sviði árið 2002.Nordicphotos/GettyFallið er því hátt á rétt innan við tíu árum. Þó verður að taka með í reikninginn almennt dvínandi plötusölu undanfarinna ára sökum ólöglegs niðurhals. Á Bionic vendur Aguilera kvæði sínu í kross og syngur taktföst, nútímaleg lög þar sem hún nýtur aðstoðar vinsælla tónlistarmanna og lagahöfunda á borð við M.I.A, Le Tigre, Peaches og Switch. Linda Perry úr 4 Non Blondes, sem var upptökustjóri Back To Basic, og samdi lögin með Aguilera, fær aðeins að spreyta sig í einu lagi. Myndbandið við fyrsta smáskífulagið Not Myself Tonight sýnir að söngkonan vill ekki vera neinn eftirbátur Lady Gaga sem hefur gnæft yfir poppdívu-markaðnum undanfarin ár.Aguilera snýr aftur til upprunans og syngur lög af gamla skólanum árið 2006.Allt er gert út á ögrandi kynþokkann með smá skvettu af kvalalosta, svona rétt til að sýna að Aguilera getur þetta alveg líka. Breytingin sem hefur aftur á móti orðið frá plötu númer tvö, Stripped, er sú að klámáherslan með hálfnakinni söngkonunni dillandi sér uppi á sviði er ekki jafnmikil, enda fékk hún skömm í hattinn fyrir hegðun sína hjá siðapostulum vestanhafs.Sjálf segist hún ekki vera að apa eftir Gaga. „Ég ætla að vera í þessu í langan tíma og eftir að hafa verið í áratug í bransanum hef ég ekkert að sanna lengur," segir hún. „Við alla þá sem vilja vera neikvæðir vil ég segja að ég er greinilega nógu merkileg til að þeim sé ekki sama um mig."Mætt aftur í djörfum dansi í von um að hressa aðeins upp á plötusöluna árið 2010.Með nýju plötunni vill Aguilera túlka kvenleika sinn í öllum sínum myndum; sem móðir, eiginkona, söngkona og leikkona, en fyrsta mynd hennar, söngvamyndin Burlesque, kemur út síðar á árinu.„Með Bionic vil ég sýna fram á þá ofurmannlegu eiginleika sem nútímakonur þurfa að búa yfir," segir hún og bætir við: „Ég hef þroskast, breyst og lært mjög mikið. Ég hef aldrei haft jafnmikið sjálfstraust og búið yfir eins miklu öryggi og eins miklum kynþokka og í dag."
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira