Tangómaraþon um helgina 19. mars 2010 03:00 Tónlist Hópurinn Fimm í tangó tekur upp þráðinn á miðvikudag í Salnum en um helgina er tangómaraþon við tjarnarbakkann, í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur. mynd Fimm í Tangó
Kunnáttumenn í tangódansi mæta um helgina áskorun: Tangófélagið efnir til veglegs tangómaraþons til styrktar átaki Krabbameinsfélags Íslands, Karlmenn og krabbamein: Mottumars í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur. Koma hingað plötusnúðar frá Svíþjóð, Danmörku og Íslandi og er því ljóst að tónlistin ætti að vera bæði fjölbreytt og skemmtileg. „Dagskráin stendur frá kl 20.00 á föstudegi til kl. 18.00 á sunnudaginn,“ segir Hany Hadaya sem er einn af forgöngumönnum þessa dansátaks: „Á laugardaginn verður dansað frá hádegi til sjö en þá verður haldið í sameiginlegan kvöldverð á veitingahúsinu Pisa. Síðan höldum við áfram að dansa frá 20.30 til 05.00. Á sunnudaginn færum við okkur yfir í Ráðhúsið og dönsum frá hádegi til klukkan 18.00 þegar maraþoninu líkur.“ Hany bætir við að ekki muni væsa um gesti því boðið verður upp á te, kaffi, vatn og ávexti á meðan á maraþoni stendur. Í næstu viku verður önnur samkoma helguð tangónum: Hinn 24. mars verður í Salnum í Kópavogi tangókvöld helgað finnskum og íslenskum tangóum. Hópurinn Fimm í Tangó lagði upp með finnska tangóa í nóvember 2007, útsetta af Haraldi Vigni Sveinbjörnssyni og Tatu Kantomaa, og hefur hópurinn haldið fimm tónleika síðan sem hafa verið undirlagðir tangótónlist. Frumsamdir íslenskir tangóar hafa ratað til hópsins frá upphafi: Allir íslensku tangóarnir eru sérstaklega samdir fyrir Fimm í Tangó og hefur Haraldur Vignir þegar samið þrjá tangóa fyrir hópinn. Fleiri tónskáld hafa bæst við og mun hljómsveitin Fimm í Tangó frumflytja tangó eftir Hafdísi Bjarnadóttur. Hópinn skipa nú Ágúst Ólafsson, söngur, Ástríður A. Sigurðardóttir, píanó, Íris Dögg Gísladóttir, fiðla, Kristín Lárusdóttir, selló, og Matti Kallio, harmónika. Tangóunnendur og státnir dansmenn, karlar og konur, hafa því nóg að gera næstu viku. - pbb
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Sjá meira