Evrópumálin grundvöllur endurreisnarinnar 14. maí 2010 13:01 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, flutti skýrslu um utanríkis- og alþjóðamál á Alþingi í dag. Þar fjallaði hann um aðildarumsókn að ESB. Mynd/Anton Brink „
Ég dreg enga dul á að ég lít á Evrópumálin sem grundvöll í endurreisn Íslands. Það hefur aldrei verið ríkari ástæða en einmitt nú til að láta reyna á hvað falist getur í aðildarsamningi," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, þegar hann flutti skýrslu um utanríkis- og alþjóðamál á Alþingi í dag. Hann sagði að það væri mikilvægt að hafa umsóknarferlið eins opið og gagnsætt og hægt væri ekki síst til að eyða tortryggni og misskilningi. Málið væri vissulega umdeilt en um skipan aðalsamningamanns, samninganefndarinnar sjálfrar og samningahópanna tíu ríkti góð sátt, ekki síst við hagsmunasamtök. Þá sagðist Össur telja að hægt væri að tryggja bæði hagsmuni sjávarútvegs og landbúnaðar í aðildarviðræðunum. „Íslenskur sjávarútvegur er í fremstu röð. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins á ekkert aðildarríkja tilkall til veiðiheimilda í íslenskri lögsögu. Í áliti framkvæmdastjórnarinnar kemur líka skýrt fram, að ESB gerir ráð fyrir, að aðild Íslands, hefði þýðingarmikil áhrif á sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna. Það gefur tilefni til bjartsýni, því sú staðhæfing felur í sér yfirlýsingu um, að það sé fullt tilefni fyrir ESB að taka tillit til okkar stefnu um fiskveiðar." Össur sagði að í þessu ljósi og ekki síður vegna viðræðna hans við forystumenn helstu sjávarútvegsþjóða ESB telji hann sterk rök standa til þess að Íslendingar geti haldið sínu í sjávarútvegsmálum innan Evrópusambandsins. „Við vitum að Finnar náðu sérstökum heimildum fyrir sinn landbúnað, og stuðningur við íslenska bændur rúmast innan þess ramma sem norðurslóðastuðningur í Finnlandi leyfir. Á reynslu Finna getum við byggt rök fyrir heimildum sem ganga enn lengra - ef við viljum."
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Sjá meira