Pissaði í kattasandinn sex ára gamall 4. nóvember 2010 14:00 Gunnar Theódór afhendir Petrúnu Sigurðardóttur í Kattholti fyrsta eintakið af Köttum til varnar. Kettirnir virðast sjálfir áhugasamir. Fréttablaðið/GVA „
Kveikjan að bókinni var reglugerð sem átti að setja um lausagöngu katta í Árborg í sumar. Ég sagði mína skoðun á þessu á Facebook og út frá henni kviknuðu mjög fjörlegar og eldfimar samræður sem bókin er byggð á," segir Gunnar Theódór Eggertsson, sem hefur sent frá sér bókina Köttum til varnar. Í henni er að finna samræður um ketti og dýrahald almennt í borgum og þá eru í formálanum nokkrar reynslusögur Gunnars af kattahaldi, eins og þegar hann pissaði í kattasandinn sex ára. Gunnar ákvað að athuga hvort útgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson hefði áhuga á að gefa út verkið en stjórnarformaður JPV-forlagsins er kötturinn Randver. Endurskoðandinn er af sama kyni og heitir Breki og Jóhann Páll situr síðan sjálfur í stjórn Kattholts. „Enda sagði ég við hann að það væri nánast heilög skylda hans að gefa bókina út," segir Gunnar, sem á engan kött um þessar mundir enda búsettur í París. Hins vegar eru foreldrar hans, þau Þórunn Valdimarsdóttir og Eggert Þór Bernharðsson, miklir kattaeigendur, raunar svo miklir að RÚV gerði frétt um kettina þeirra ellefu þegar Gunnar var sex ára. Fréttir af illri meðferð á köttum rata reglulega á síður blaðanna og Gunnari fannst því tilvalið að afhenda forsvarsmönnum Kattholts fyrstu bókina, en allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til styrktar athvarfsins. „Ég vissi að mér ætti eftir að bregða en ekki svona rosalega mikið. Það þarf að bæta aðstöðuna þarna verulega þannig að kettirnir geti farið út og fengið sér frískt loft," segir Gunnar.- fgg
Mest lesið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Sjá meira