Manda á tímamótum 4. nóvember 2010 11:30 Marín Manda leitar nú að arftaka netverslunarinnar sinnar. Fréttablaðið/Valli „
Mér finnst tími til kominn að fara að elta nýja drauma,“ segir Marín Manda Magnúsdóttir, sem nýlega ákvað að selja netverslun sína, Baby Kompagniet. Marín Manda segir nokkrar ástæður fyrir því að hún ákvað að selja fyrirtækið, en hún hefur rekið það í tæp fjögur ár. „Fyrir rúmlega hálfu ári tók ég við stöðu sem deildarstjóri barnadeildar Bahne-fatakeðjunnar hér í Kaupmannahöfn, en Bahne-keðjan er með mörg af betri barnafatamerkjunum í dag. Samhliða nýja starfinu hef ég verið að reka Baby Kompagniet og sjá um börnin mín,“ segir Marín, en hún og danskur sambýlismaður hennar eiga tvö lítil börn. „Ég er mjög ánægð með nýja starfið þrátt fyrir að vera að kafna í vinnu. Ég fann fyrir því hvað ég var farin að sakna þess að vinna með fólki, svo nú er ég tilbúin að stíga skrefið og finna arftaka Baby Kompagniet,“ segir Marín. Marín segist vel geta hugsað sér að flytja til Íslands á næstu árum. „Ég er búin að búa í Kaupmannahöfn í rúmlega níu ár og á mína fjölskyldu hér. Undanfarið hef ég samt fengið meiri heimþrá en nokkurn tímann áður,“ segir Marín en bætir við að útlandakaflanum í hennar lífi sé þó ekki alveg lokið. Þeim sem áhuga hafa á Baby Kompagniet er bent á að hafa samband við Marín á netfangið info@baby-kompagniet.dk. „Hver veit nema sá draumur leynist hjá einhverjum að fara í sjálfstæðan rekstur,“ segir Marín að lokum. - ka
Mest lesið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Enginn Óskar til Íslands 2026 Bíó og sjónvarp Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Fleiri fréttir Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Sjá meira