Biðlistar í bókabúðum eftir Rannsóknarskýrslunni 10. apríl 2010 06:00 Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður gerð opinber á vefslóðinni rannsoknarnefnd.is á mánudagsmorgun. Bókabúðír eru við öllu búnar, sumar eru með biðlista en aðrar ætla að gefa fólki tækifæri til að tjá sig. Arndís Björg Sigurgeirsdóttir hjá Iðu er þó efins um að fólk muni flykkjast í bókabúðir til að kaupa doðrantinn.
Langir biðlistar eru í bókabúðum miðbæjarins eftir skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem kemur út á mánudaginn. Mikil umfjöllun verður um skýrsluna á RÚV og Stöð 2. Langþráð bið margra verður á enda á mánudaginn þegar skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis verður öllum aðgengileg á vef nefndarinnar. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis verður hinni tvö þúsund síðna skýrslu dreift í bókabúðir klukkan hálf ellefu um morguninn. „Við erum með nokkur símanúmer sem við eigum að hringja í þegar skýrslan kemur í hús. Það er mikil spenna í loftinu," segir Elsa María Ólafsdóttir, verslunarstjóri í bókabúð Pennans við Skólavörðustíg. Hún vonast til að skýrslan komi fljótt í hús en búið er að taka frá sérstakt bretti sem skýrslan verður sett á og verður það á besta staðnum í bókabúðinni. Dögg Hjaltalín, verslunarstjóri í Mál og menningu á Laugavegi, segir þau ekki vera með neinn biðlista. Þau ætli hins vegar að vera með hljóðnema sem fólk getur gripið í ef það vill tjá sig. Enda má búast við að mörgum verði mikið niðri fyrir þennan dag. „Fólk má lesa upp úr skýrslunni ef það vill, lesa ljóð sem tengjast skýrslunni eða hreinlega syngja lag, við viljum bara gefa fólki leyfi til að pústa aðeins og fá tækifæri til að tjá sig," segir Dögg. Í sama streng tekur Svanborg Sigurðardóttir, verslunarstjóri í Eymundsson í Austurstræti. „Við erum með langan biðlista hjá okkur af fólki sem er búið að taka þetta rit frá. Það hringir fólk á hverjum degi og tryggir sér eintak," útskýrir Svanborg en líkt og á Skólavörðustíg verður skýrslan á besta stað í versluninni. Arndís Björg Sigurgeirsdóttir, verslunarstjóri í Iðu við Lækjargötu, er hins vegar efins um að fólk muni flykkjast í stórum stíl í bókabúðir og kaupa sér eintak af þessum mikla doðranti sem skýrslan óneitanlega verður. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Lífið samstarf Fleiri fréttir Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Sjá meira