Meðfylgjandi má sjá myndir af leikkonunni Angelinu Jolie sem er dugleg að hreyfa sig. Hún stundar jóga og skokkar að minnsta kosti 30 mínútur daglega til að halda sér í góðu formi.
Þá iðkar Angelina kikkbox og tekur fjölda magaæfinga á hverju degi. Angelina segist borða sex hollar máltíðir daglega.
Við leituðum til lesenda Lífsins á Facebook síðunni okkar eftir góðum ráðum sem kosta ekkert en bæta útlit okkar og líðan.
„Hrein jógúrt og haframjöl á líka að róa húðina. Ef þú ert með þurra húð geturðu bætt hunangi út í."
„Korgurinn úr kaffipokanum er rosagott skrúbb á fætur. Svo hreinsar það víst niðurfallið í leiðinni."
„Góður svefn, forðast sól í miklu magni."
„Þessi hérna telur þarann í sushi vera góður fyrir húðina."
„Skera niður engiferrót í baðið, stresslosandi."
„Skera sítrónu í tvennt og nudda á andlitið fyrir svefn, hjálpar t.d. til í baráttunni við fílapensla. Blanda saman 1 tsk af hunangi og 1 tsk af múskati (nutmeg) og bera á andlitið eins og maska. Skolað af eftir 20 mín. Þetta mýkir húðina, jafnar húðlit og á að hjálpa til að losna við ör, t.d. eftir bólur."
„Avocado bæði í hár og húð. Það er dásamlegt, alveg nýtt hár, fallegur glansi."
„Sítrónu í andlitið=mjúk húð."
„Eins líka, gróft salt, olía og blóðberg mjög góður skrúbb og á sprungna hæla... sleppa svo saltinu og hafa sykur, olíu og blóðberg í fínan skrúbb á kroppinn, eins mjög gott að nudda þessu á svæði eftir rakstur til þess að fá ekki inngróin hár (sykur blönduna)."
Takk allar fyrir þátttökuna. Vertu með okkur á
Facebook.