Andspyrna á Laugardalsvelli 20. mars 2010 03:00 Deild í sumar Friðgeir Torfi og félagar í áströlskum fótbolta ætla að byrja með þriggja liða deild í sumar. Þeir vilja spila vináttulandsleik við Hollendinga á Laugardalsvellinum.Fréttablaðið/Vilhelm „
Við fengum ósk um vináttulandsleik frá Hollendingum og viljum gjarnan að hann fari fram á Laugardalsvellinum. Enda kominn tími til að karlalandslið fari nú að vinna eitthvað á þessum velli," segir Friðgeir Torfi Ásgeirsson, forseti Andspyrnusambands Íslands. Friðgeir hefur rætt við vallarstjóra Laugardalsvallarins sem tók ágætlega í málið og það er nú í réttum farvegi. Ekki liggur fyrir hvenær leikurinn við Hollendinga verður en stefnt er að því að hann verði fyrir Evrópumeistaramótið í áströlskum fótbolta sem fram fer í Kaupmannahöfn og Malmö í sumar. Þegar Friðgeir er krafinn skýringa á nafni sambandsins, Andspyrna, stendur ekki á útskýringum. „Okkur fannst nafnið „ástralskur fótbolti" vera nokkuð óþjált og höfum því verið að leita eftir nýju íslensku orði. Andspyrna er samsett úr orðinu „andfætlingur", sem er annað heiti yfir Ástrali, og svo knattspyrnu," útskýrir Friðgeir en á næstunni verður opnuð heimasíðan andspyrna.is. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá stundar hópur íslenskra pilta þessa harðskeyttu íþrótt og ætla piltarnir nú að færa út kvíarnar. „Við ætlum að setja á fót deild þriggja liða til að byrja með og svo verður opinn kynningardagur 2. maí þar sem við kynnum íþróttina á Austurvelli, leyfum fólki að sparka í bolta og sjá sportið með berum augum," segir Friðgeir en fyrir áhugasama má benda á að æfingar eru í Fífunni í Kópavogi klukkan níu á sunnudagskvöldum. - fgg
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Sjá meira