Bakkavík í Bolungarvík gjaldþrota 27. apríl 2010 18:03
Bakkavík hf. í Bolungarvík hefur verið úrskurðað gjaldþrota og Tryggvi Guðmundsson skipaður skiptastjóri. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi verið stofnað árið 2001 og hefur það rekið öfluga rækjuvinnslu í Bolungarvík síðan. Jafnframt rak félagið fiskvinnslu og útgerð um nokkurra ára skeið og var mest með rúmlega 100 manns í vinnu. Undanfarið hafa um 30 manns unnið hjá félaginu. „Þegar félagið hóf starfsemi var gert ráð fyrir að vinna rækju að verulegu leyti úr fersku hráefni af heimamiðum, en eins og kunnugt er dró verulega úr rækjuveiði á Íslandsmiðum uppúr aldamótum. Af þeim sökum hefur félagið nær eingöngu unnið rækju af fjarlægum miðum, sem flutt er fryst til landsins. Staða rækjuiðnaðar á Íslandi hefur verið erfið allt frá stofnun Bakkavíkur og hafa flestallar rækjuvinnslur á Íslandi, Noregi, Danmörku og Færeyjum lagt upp laupana. Þrátt fyrir það skilaði rekstur Bakkavíkur þokkalegri afkomu allt til ársins 2009, en félagið hafði nýlokið við verulegar endurbætur á rækjuvinnslunni þegar efnahagshrun varð á árinu 2008. Vegna gengisbreytinga hækkuðu skuldir félagsins verulega og á sama tíma dró úr sölu afurða vegna efnahagskreppu á helstu mörkuðum," segir í tilkynningunni. Þá segir að stjórnendur félagsins hafi nú um nokkurra vikna skeið átt í viðræðum við helstu lánadrottna félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu. „Því miður hafa þær umleitanir ekki borið árangur. Þess vegna var stjórn Bakkavíkur hf. nauðugur sá einn kostur að óska eftir að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta."
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Sjá meira