Get vonandi boðið konunni upp í dans hér eftir 24. nóvember 2010 09:00 Guðmundur segir íþróttamenn almennt taktlausa en Hjörvar þann versta, taktlausasta mann landsins.
Átta íþróttamenn ætla að læra að dansa undir styrkri handleiðslu Peters Anderson fyrir dag Rauða nefsins sem haldinn verður hátíðlegur 3. desember. Íþróttamenn eru taktlausir, segir einn þátttakenda. Átta íþróttamenn ætla að hittast í Listdanskólanum við Engjateig á laugardag og sunnudag og æfa réttu sporin fyrir dansatriði sem þeir setja upp á degi Rauða nefsins 3. desember. Peter Anderson danskennari mun stýra hópnum en í honum eru menn sem eru eflaust þekktari fyrir afrek sín á íþróttavellinum en dansgólfinu. Hugmyndin er sú að þeir stígi villtan dans í beinni útsendingu á degi Rauða nefsins þar sem uppbyggingin verður svipuð og í amerísku raunveruleikasjónvarpsþáttunum So You Think You Can Dance. Einn þátttakenda er Guðmundur Benediktsson, íþróttaþulur hjá Stöð 2 Sport, sem er reyndar búinn að leggja skóna á hilluna. Þrátt fyrir að Guðmundur hafi verið þekktur fyrir útsjónarsemi og markaskorun þá segist hann sjálfur vera algjörlega reynslulaus þegar kemur að dansi. „Ég hef ekki einu sinni náð að dansa við konuna mína, ég veit þess vegna ekki hvernig þeim tókst að plata mig út í þetta, það hlýtur að vera þetta góða málefni," segir Guðmundur í samtali við Fréttablaðið. Hann telur íþróttamenn almennt vera taktlausa en nú ætli þeir að vinna í þeim hvimleiða kvilla. „Vonandi tekst þessum Peter að finna taktinn með okkur." Guðmundi til halds og trausts verða kappar á borð við Sigurð Eggertsson handknattleiksmann, Gunnar Nelson bardagakappa, Jakob Jóhann sundmann, Hauk Harðarsson og Hjört Júlíus Hjartarson af RÚV, Ólaf Kristjánsson, þjálfara Breiðabliks, og svo Hjörvar Hafliðason, samstarfsmann Guðmundar úr Sunnudagsmessunni á Stöð Sport 2.Guðmundur er handviss um að fyrrum markvörðurinn Hjörvar sé hreinlega taktlausasti maður landsins og hann þurfi jafnvel á aukatímum að halda. „Ég er annars bjartsýnn fyrir mína hönd, þetta gæti verið upphafið að einhverju stórkostlegu í mínu lífi og hugsanlega kemur maður konunni á óvart á næstu árshátíð og býður henni upp í dans."freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira