Þakkar Hrafni fyrir ferilinn 24. nóvember 2010 07:30 Noomi Rapace segist hafa uppgötvað nýjan heim þegar hún var við tökur á víkingamyndinni Í skugga hrafnsins eftir Hrafn Gunnlaugsson. Þá hafi hún ákveðið að verða leikkona.Fréttablaðið/Arnþór
Hin sænska Noomi Rapace er stolt af þeim tíma sem hún eyddi á Íslandi. Hún er þakklát Hrafni Gunnlaugssyni fyrir að kveikt í sér draum um að gerast leikkona. Noomi Rapace, leikkonan sem sló eftirminnilega í gegn í hlutverki Lisbeth Salander, þakkar Hrafni Gunnlaugssyni og kvikmyndinni Í skugga hrafnsins fyrir að hafa kveikt í leikkonudraumnum sem hún hafði. Þetta kemur fram í viðtölum við bresk blöð. Þriðja myndin í Millennium-þríleiknum verður frumsýnd í Bretlandi um helgina og bresk blöð hafa birt fjölda viðtala við sænsku leikkonuna sem leikur einnig stórt hlutverk í Sherlock Holmes 2. Rapace hefur hingað til leyft blaðamönnum að fjalla um íslenskan uppruna sinn en í nýlegum viðtölum hefur hún gert dvöl sinni hér á landi hærra undir höfði. Noomi flutti til Íslands, nánar tiltekið á Flúðir, þegar móðir hennar tók saman við íslenskan mann og þær mæðgur bjuggu hér saman í þrjú og hálft ár. „Á tímabili var ég orðin meiri Íslendingur en Svíi og vildi ekki fara aftur til Svíþjóðar. Þegar við fluttum til Stokkhólms lýsti ég því yfir á hverju ári við alla sem vildu heyra að ég ætlaði að flytja aftur heim til Íslands,“ segir Noomi meðal annars í samtali við skoska blaðið Herald Scotland. Þegar hún Noomi var aðeins sjö ára fékk hún óvænt lítið hlutverk í víkingamynd Hrafns Gunnlaugssonar, Í skugga hrafnsins. Noomi segir að þótt hún hafi ekki fengið að segja neitt þá hafi hún þarna áttað sig á því hvað hana langaði til að gera í framtíðinni. „Á tökustaðnum opnaðist nýr heimur fyrir mér, ég held að ég hafi ákveðið á þeim tímapunkti að mig langaði til að verða leikkona.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira