Ætla að hafa gaman af þessu 28. október 2010 07:00 Síðrokkarar snúa aftur Náttfari árið 2010. Frá vinstri: Nói, Andri, Haraldur og Ólafur.
Síðrokksveitin Náttfari spilar á Sódómu í kvöld eftir margra ára hlé. Sveitina skipa tveir meðlimir Leaves, þeir Andri Ásgrímsson og Nói Steinn Einarsson, Ólafur Josephsson (Stafrænn Hákon) og Haraldur Þorsteinsson sem er einnig bassaleikari í Feldberg og Stafrænum Hákoni. „Það er engin geðveik alvara á bak við þetta. Við ætlum bara að taka þessi gömlu lög og hafa gaman af þessu,“ segir Andri. „Við erum ekki búnir að æfa mikið af nýjum lögum en við erum komnir með einhverjar hugmyndir,“ bætir hann við en Náttfari gaf aldrei út plötu á sínum tíma. „Við féllum á því prófi. Við vorum alltaf með einhver demó í gangi og það var hiti í kringum okkur. Svo ætluðum við að gera þetta voða stórt og flott en þetta féll allt einhvern veginn eins og spilaborg.“ Náttfari var stofnuð um aldamótin og var starfandi í um tvö ár. Hún var hluti af síðrokksbylgjunni sem þá var áberandi í íslensku tónlistarlífi með sveitum á borð við Sofandi, Lúnu, Úlpu, Hudson Wayne og síðast en ekki síst Sigur Rós. Andri segir að tilviljun hafi ráðið því að Náttfari ákvað að snúa aftur. „Við vorum eiginlega hættir að hugsa um þetta. Ég gaf út sólóplötu um síðustu jól og hóaði í strákana. Planið var að flytja það efni og svo hittumst við og þá lá bara beinast við að byrja aftur.“ Markús and the Diversion Sessions, Stafrænn Hákon og Sudden Weather Change stíga einnig á svið á Sódómu og verður húsið opnað klukkan 21. - fb
Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira