Lífið

Ætla að hafa gaman af þessu

Síðrokkarar snúa aftur Náttfari árið 2010. Frá vinstri: Nói, Andri, Haraldur og Ólafur.
Síðrokkarar snúa aftur Náttfari árið 2010. Frá vinstri: Nói, Andri, Haraldur og Ólafur.
Síðrokksveitin Náttfari spilar á Sódómu í kvöld eftir margra ára hlé. Sveitina skipa tveir meðlimir Leaves, þeir Andri Ásgrímsson og Nói Steinn Einarsson, Ólafur Josephsson (Stafrænn Hákon) og Haraldur Þorsteinsson sem er einnig bassaleikari í Feldberg og Stafrænum Hákoni.

„Það er engin geðveik alvara á bak við þetta. Við ætlum bara að taka þessi gömlu lög og hafa gaman af þessu,“ segir Andri. „Við erum ekki búnir að æfa mikið af nýjum lögum en við erum komnir með einhverjar hugmyndir,“ bætir hann við en Náttfari gaf aldrei út plötu á sínum tíma. „Við féllum á því prófi. Við vorum alltaf með einhver demó í gangi og það var hiti í kringum okkur. Svo ætluðum við að gera þetta voða stórt og flott en þetta féll allt einhvern veginn eins og spilaborg.“

Náttfari var stofnuð um aldamótin og var starfandi í um tvö ár. Hún var hluti af síðrokksbylgjunni sem þá var áberandi í íslensku tónlistarlífi með sveitum á borð við Sofandi, Lúnu, Úlpu, Hudson Wayne og síðast en ekki síst Sigur Rós.

Andri segir að tilviljun hafi ráðið því að Náttfari ákvað að snúa aftur. „Við vorum eigin­lega hættir að hugsa um þetta. Ég gaf út sólóplötu um síðustu jól og hóaði í strákana. Planið var að flytja það efni og svo hittumst við og þá lá bara beinast við að byrja aftur.“

Markús and the Diversion Sessions, Stafrænn Hákon og Sudden Weather Change stíga einnig á svið á Sódómu og verður húsið opnað klukkan 21. - fb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.