Selur jakkaföt á daginn og spilar rokktónlist á kvöldin 10. júní 2010 10:30 Guðfinnur segist lána hinum strákunum í For a Minor Reflection jakkaföt þegar mikið stendur til. Þeir senda frá sér plötuna Höldum í átt að óreiðu í dag. „
Þetta fer ágætlega saman og gengur mjög vel. Ég er líka með góðan vinnuveitanda sem er til í að koma til móts við mann," segir Guðfinnur Sveinsson. Mýtan um lattelepjandi listatrefilinn á ekki við í tilfelli Guðfinns, en hann starfar í herrafataversluninni Boss búðin í Kringlunni á daginn þar sem hann klæðir menn upp í glæsileg jakkaföt. Á kvöldin leikur hann á gítar með hljómsveitinni For a Minor Reflection sem sendir frá sér plötuna Höldum í átt að óreiðu í dag. Platan er númer tvö í röðinni, en árið 2007 gaf hljómsveitin út plötuna Reistu þig við, sólin er komin á loft. Guðfinnur segist ekki vera skotspónn hljómsveitarfélaga sinna þrátt fyrir að selja föt sem ríma ekki við tónlistarstefnu For a Minor Reflection, en til glöggvunar hefur tónlistargúrúið Dr. Gunni lýst tónlistinni sem Sigur Rós án söngs. „Þeir eru aðallega í því að fá jakkaföt hjá mér," segir Guðfinnur. „Þeir eiga ekki jakkaföt og ég þarf stundum að lána þeim þegar það eru útskriftir og svona." Guðfinnur segir tónlist For a Minor Reflection hafa þróast nokkuð á nýju plötunni. Lögin eru ekki eins löng og áður ásamt því að skýrara bil sé á milli hörðu og mýkri kafla tónlistarinnar. „Við vorum í rosalega týpísku póst-rokki með löngum uppbyggingum," segir hann. „Það er gott og blessað en það er skemmtilegt að fara út fyrir kassann." Hljómsveitin gefur plötuna út sjálf, en sú ákvörðun var tekin vegna þess að strákarnir nenntu ekki að eltast við plötufyrirtækin. „Við vonuðum fyrst að okkur yrði boðið gull og grænir skógar, en svo hættum við að pæla í því og það er eiginlega skemmtilegra að gefa út sjálfir," segir Guðfinnur. „Það er erfiðara, en það er skemmtilegra að vera sinn eigin herra." Platan kemur út í Evrópu í haust og þá hyggst hljómsveitin vera ötul við tónleikahald erlendis, eins og hún hefur verið síðustu ár. „Við ætlum að túra eins mikið og við getum í haust," segir Guðfinnur. „Við munum aðallega einblína á Evrópu en við ætlum líka að fara eitthvað til Bandaríkjanna." Hér er Myspace-síða For a Minor Reflection. Þar er hægt að hlusta á nokkur lög með sveitinni.
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira