Innlent

Fjórir fluttir á spítala eftir bílveltu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu. Mynd/ Pjetur.
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir bílveltu. Mynd/ Pjetur.
Fjórir voru fluttir á spítala eftir að bíll valt við Mánatorg norðan við Keflavík um hálfsjöleytið í morgun. Í bílnum voru þrjár stúlkur og einn piltur.

Öll eru þau rétt undir tvítugu. Þrjú þeirra voru flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi en eitt á sjúkrahús í Keflavík, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Ekki er vitað um líðan þeirra.

Lögreglan gat ekki gefið upplýsingar um tildrög slyssins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×