Innlent

Krían er komin

Kríuhópur sást við Höfn í dag. Mynd/ Pjetur.
Kríuhópur sást við Höfn í dag. Mynd/ Pjetur.
Krían er komin. Fuglaáhugamenn á Hornafirði sáu kríuhóp við Ósland á Höfn í dag. Ragnheiður Gestsdóttir, íbúi á Hornafirði, tilkynnti þetta á facebook-síðu sinni og sagði að þarna væru um tíu kríur. Þetta er fyrsta tilkynningin í ár um kríuna.

Vefsíða fuglaáhugamanna, fuglar.is, greinir einnig frá komu kríunnar og segir töluvert komið af kríum við Óslandið. Fyrsti hópurinn hafi verið um tíu fuglar en svo hafi mun fleiri bæst við. Þar segir ennfremur að frá árinu 1998 hafi fyrstu kríurnar sést á tímabilinu 15. til 27. apríl. Það sé nær undantekningalaust sem fyrstu kríurnar sjáist utan við Ósland á Höfn enda sé vel fylgst með komu þeirra þar.

Krían er sá farfugl jarðar sem flýgur lengst allra fugla milli varpstöðva og vetrarstöðva en hingað er hún komin frá ísbreiðunum við Suðurskautið og á að baki um 15 þúsund kílómetra ferðalag. Talið er að krían sé að jafnaði um tvo mánuði á ferðalaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×