Bara plata í Fríkirkjunni 24. apríl 2010 06:45 Ísgerður heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í dag.fréttablaðið/gva „
Fríkirkjan er bara fullkomin, þetta er svo skemmtilegt hús,“ segir leik- og söngkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir. Ísgerður gaf út barnaplötuna Bara plata á dögunum og heldur útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík klukkan 14 í dag. Ekkert kostar inn á tónleikana og Ísgerður lofar að leynigestur stígi á svið. Bara plata er fyrsta plata Ísgerðar, en hún stýrði Stundinni okkar í Sjónvarpinu á árunum 2006-2008. Er það rétt sem fólk í þínum bransa segir að börnin séu gríðarlega dómharðir áhorfendur? „Þau eru það náttúrulega.“ Og hvað, standa þau til dæmis upp og fara ef þeim leiðist? „Ég hef bara ekki lent í að þeim finnist ég leiðinleg (hlær) sjö, níu, þrettán.“ Ísgerður játar að börnin sýni mikla hörku þegar þau biðja um óskalag og virði tilfinningar skemmtikraftsins að vettugi þegar þeim mislíkar lagavalið. Ísgerður er ánægð með viðtökurnar og hefur þegar fengið góða dóma, t.d. frá börnum vina sinna og vinkvenna, sem heyra nú rödd vinkonu sinnar talsvert oftar en áður. „Áður en ég gerði plötuna hugsaði ég ekki út í að allir vinir mínir myndu fá ógeð á mér,“ segir Ísgerður og hlær. Þeir sem gefa út barnaplötu á Íslandi koma ekki fram á hefðbundnum tónleikastöðum. Við getum til dæmis ekki búist við að sjá Ísgerði troða upp á Players í Kópavogi. En hvernig ætlar hún að kynna plötuna? „Það eru náttúrulega alls kyns skemmtanir, til dæmis í kringum 17. júní. Svo er ég að hugsa um að fara í tónleikaferðalag um landið og plata einhverja sniðuga með mér.“ - afb
Mest lesið Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið Yngsti gusumeistari landsins Lífið Birta og Króli eiga von á dreng Lífið Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Tíska og hönnun „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Tíska og hönnun Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Lífið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið Sjarmerandi raðhús í 105 Lífið Fleiri fréttir Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Sjá meira