Simon Cowell græðir á tá og fingri 24. apríl 2010 08:45 Eigur Idol-dómarans Simons Cowell nema um 32 milljörðum króna og ætti hann því að eiga fyrir salti í grautinn á næstunni.
Sjónvarpsmaðurinn og tónlistarframleiðandinn Simon Cowell hefur aukið auðæfi sín um 45 milljónir punda á undanförnu ári. Nema þau nú 165 milljónum punda, eða um 32 milljörðum króna. Þetta kemur fram á árlegum lista dagblaðsins The Sunday Times yfir ríkasta fólkið í breska tónlistarbransanum. Cowell er þekktastur sem hinn eitilharði dómari í hæfileikaþáttunum The X-Factor og American Idol. Helming auðæfa sinna hefur hann grætt fyrir sjónvarpsvinnu sína á undanförnum tveimur árum. Annar dómari í X-Factor, Cheryl Cole, jók einnig auðæfi sín mikið á síðasta ári, eða um tíu milljónir punda. Í efsta sæti á listanum lenti Edgar Bronfman, formaður útgáfufyrirtækisins Warner Music, sem er jafnframt í 25. sæti yfir ríkustu menn Bretlands. Eigur hans eru metnar á 1,6 milljarða punda, eða rúma 300 milljarða íslenskra króna. Athygli vekur að Ronnie Wood, gítarleikari Rolling Stone, dettur út af topp fimmtíu listanum. Auðæfi hans nema nú 20 milljónum punda en námu áður 35 milljónum. Ástæðan fyrir því er rándýr skilnaður hans við eiginkonu sína til 24 ára, Jo, á síðasta ári eftir að upp komst um framhjáhald hans. Bítlarnir fyrrverandi, Paul McCartney og Ringo Starr, komust aftur á móti á lista 50 efstu manna. Auðæfi McCartneys nema 475 milljónum punda en Ringo er aðeins neðar með 140 milljónir í vasanum.
Tengdar fréttir Topp 50 ríkustu í tónlist | Myndir Breska blaðið Sunday Times birti í dag lista yfir 50 ríkustu í tónlistarbransanum í Bretlandi. 25. apríl 2010 15:51 Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira
Topp 50 ríkustu í tónlist | Myndir Breska blaðið Sunday Times birti í dag lista yfir 50 ríkustu í tónlistarbransanum í Bretlandi. 25. apríl 2010 15:51