Clooney sefur á ofurmjúku kasmírlaki 24. apríl 2010 06:00 Leikarinn vinsæli getur ekki án mjúka kasmírlaksins verið.
Samkvæmt starfsfólki Kahala-hótelsins á Honolulu sefur leikarinn George Clooney ávallt á ofurmjúku laki úr kasmírull. Clooney kom starfsfólki hótelsins í opna skjöldu með því að biðja um að lakið yrði ávallt sett á rúmið hans þegar búið var um á hverjum morgni. „Við urðum að leggja það yfir hin lökin þegar bjuggum um rúmið hans,“ sagði hótelstarfsmaður. „Þetta var frekar fyndið. Það var eins og þetta væri öryggislakið hans. George skildi það eftir í herberginu þegar hann fór af hótelinu og við urðum að senda það á staðinn sem hann ætlaði að fara á. Hann getur greinilega ekki verið án þess.“ Clooney var staddur á Hawaii við upptökur á kvikmyndinni The Descendants og með honum í för var kærastan hans, ítalska fyrirsætan og leikkonan Elizabetta Canalis. Eins og kom fram í Fréttablaðinu á föstudag hitti söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir parið á veitingastað í Honolulu og samkvæmt henni var hinn 48 ára Clooney ákaflega þægilegur í viðmóti. Kasmírlakið mjúka hefur vafalítið átt sinn þátt í því.
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira