Innlent

Þingmaður sjálfstæðisflokks lýsir stuðningi en þingmaður VG efast

ragnheiður elín árnadóttir
ragnheiður elín árnadóttir

„Ég er með efasemdir um slíka starfsemi á vellinum," segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, spurður um viðhorf hans til þess að E.C.A. Program fái að reka hér starfsemi í tengslum við rekstur orrustuþotna og þátttöku í heræfingum. Hann segist hins vegar ekki hafa skoðað málið og tjáir sig því ekki frekar um það.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er hins vegar spennt fyrir verkefni E.C.A. Program: „Ég er búin að fylgjast með þessu máli í dálítinn tíma og finnst þetta spennandi tækifæri, sem skapar góð og dýrmæt störf á þessu svæði," segir hún. „Ef allt gengur eftir sé ég enga hættu samfara því að hleypa þessu af stað."

Ragnheiður segist ekki telja að með þessu sé verið að hvetja til hernaðar heldur sé verið að veita mikilvæga þjónustu í þessum geira. Alltaf sé verið að leita að tækifærum á flugvallarsvæðinu. Starfsemi E.C.A. gæti einnig rennt traustari stoðum undir flugakademíu Keilis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×