„I hate Iceland“-gaurinn orðinn allsherjar netbrandari 26. apríl 2010 12:30 Skotinn viðurkenndi með semingi að hann hefði verið búinn að fá sér í tánna áður en hann tróð sér í sjónvarpið. „
Ég hef aldrei verið jafn stoltur af sjálfum mér,“ sagði Skotinn sem komst í heimsfréttirnar í kjölfar þess að flugvellir lokuðu eftir eldgosið í Eyjafjallajökli. Hann tróð sér í viðtal á Sky og öskraði að hann hataði Ísland. Þetta vakti mikla athygli og honum var kippt í útvarpsviðtal í kjölfarið. Tveimur vikum seinna lifir fimmtán mínútna frægð Skotans enn góðu lífi á YouTube. Nú eru Netverjar byrjaðir að nota setninguna hans til að búa til alls kyns lög og brandara. Alls eru nú komin um 75 myndbönd með Skotanum á YouTube en þau eru flest með dúndrandi danstónlist undir setningunni frægu. Einn notandi snýr setningunni þó upp í „I hate Aslan“ og setur hana yfir dramatískt atriði þar sem ljónið Aslan deyr í myndinni Ljónið, nornin og skápurinn. Breska stjarnan Kelly Cantona, sem er talsmaður auglýsingakeðjunnar Iceland, er síðan blönduð inn í sum myndböndin. Í einu er storkur látinn segja orðin, í öðru er búið að setja Sky-viðtalið upp í tölvuleiknum Modern Warfare 2 og þar fram eftir götunum. Alls hafa um tvær milljónir manna nú horft á þessi myndbönd en setningin „Ég hata Ísland“ hefur hljómað margfalt oftar í hátölurum út um allan heim. Nokkur myndbandanna á YouTube:I hate Iceland Sparta Remix I hate Iceland Modern Warfare I hate Iceland storkur
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Fleiri fréttir Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Sjá meira