Innlent

Lífeyrissjóðir meta hvort stefna þurfi bönkunum

Fjöldi fólks íhugar málshöfðun á hendur bönkunum í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Lífeyrissjóðirnir fara nú yfir skýrsluna með lögfræðingum.
fréttablaðið/samsett mynd
Fjöldi fólks íhugar málshöfðun á hendur bönkunum í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Lífeyrissjóðirnir fara nú yfir skýrsluna með lögfræðingum. fréttablaðið/samsett mynd samsett mynd/kristinn
„Auðvitað er fullt af fólki að kanna réttarstöðu sína og ég viðurkenni það ósköp vel að ég er að kanna réttarstöðu mína.“ Þetta segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við viðskiptafræðideild við Háskóla Íslands. Hann segir menn verða að vanda sig í þessum málum og hann sé að hugsa sinn gang.

Fyrir Alþingi liggur frumvarp til breytinga á lögum um meðferð einkamála sem heimilar hópmálsókn. Flutningsmenn eru þingmenn allra flokka.

Vilhjálmur segir margt liggja skýrar fyrir eftir skýrslu rannsóknarnefndarinnar og margir hljóti að hugsa sinn gang. „Ef lífeyrissjóðirnir eru ekki að hugsa sinn gang þá er nú eitthvað að hjá þeim.“

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, segir að þar á bæ sitji menn yfir skýrslunni með aðstoð lögmanna. Enn á eftir að semja um uppgjör gjaldeyrisskiptasamninga milli bankanna og sjóðanna og hafa lífeyrissjóðirnir lagt til að frá þeim verði gengið miðað við gengisvísitöluna 175. „Okkar boð stendur enn, en það kann að breytast miðað við það sem stendur í skýrslunni,“ segir Hrafn.

Hann segir sjóðina þó vilja leysa málið án þess að til umfangsmikilla málaferla komi. Ekkert sé að gerast í málinu af hálfu skilanefndanna, en það sé best fyrir alla að ljúka því.

„Það er ekki góð staða að fara með þetta í málaferli en það gæti reynst nauðsynlegt.“ - kóp
vilhjálmur bjarnason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×