Innlent

Stálust til veiða í Þorleifslæk

Í Varmá og Þorleifslæk við Hveragerði eru miklar sjóbirtingsslóðir.
Í Varmá og Þorleifslæk við Hveragerði eru miklar sjóbirtingsslóðir.

Fjórir menn, sem sást til við veiðar í Þorleifslæk, flúðu af hólmi úr Stöðvarhyl, einum besta veiðistað árinnar, þegar aðvífandi veiðimaður innti þá eftir veiðileyfi. Mun þetta ekki vera eina dæmið um að sést hafi til veiðiþjófa í Þorleifslæk í vor að því er segir á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.

„Við þær aðstæður er um að gera að spyrja einfaldlega þá sem mann grunar um græsku um að framvísa veiðileyfi. Einn veiðimaður gerði slíkt á dögunum er hann kom að fjórum stöngum við Stöðvarhyl. Sá hann undir iljarnar á mannskapnum þar sem þeir þustu upp í bíl og í burtu,“ segir á svfr.is. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×