Tóbaksfræ til heimabrúks 7. maí 2010 05:30 Starfsmaður Garðheima með poka af bóndatóbaksfræum. Fréttablaðið/GVA
Í verslun Garðheima í Reykjavík eru til sölu tóbaksfræ undir heitinu Wild tobacco. Fræðiheiti plöntunnar er nicotiana rustica og er annarar tegundar en almennt er notuð í tóbaksframleiðslu (nicotiana tabacum). Hún ber þó í sér töluvert meira magn nikótíns. Hér var plantan árum áður nefnd „bóndatóbak“ til aðgreiningar „borgaratóbaki“ sem fremur var notað í tóbaksframleiðslu. Á vef landbúnaðarráðuneytis Bandaríkjanna kemur fram að plantan sé þar algeng í suðvesturríkjunum, í Mexíkó og Suður-Ameríku. Þá hafi plantan verið notuð í margvíslegum helgisiðum ættbálka indíána sem og í lækningaskyni. Gæluheiti eru meðal annars Azteka-tóbak, Zuni-tóbak og Mapacho. Þá kemur fram á alfræðivefnum Wikipediu að vegna þessa magns nikótíns í plöntunni sé hún gjarnan notuð til að búa til náttúrulegt skordýraeitur. „Í Rússlandi er N.rustica kölluð „mahorka“. Fólk af lágstéttum reykti hana áður en venjulegt tóbak komst í almenna dreifingu eftir seinni heimsstyrjöldina og er hún stundum enn notuð á þann veg af bændum og búaliði,“ segir á vef Wikipediu. Þar kemur fram að nikótínmagn í laufum plöntunnar sé allt að níu prósent, en eitt til þrjú prósent í hefðbundnum tóbaksplöntum. „Nei, ég held að það sé af og frá að fólk sé í einhverjum mæli að gera tilraunir með að rækta sitt eigið tóbak. Þetta voru svo fá bréf sem við vorum með hérna,“ segir Vilmundur Hansen, garðyrkjufræðingur í Garðheimum. „Þetta er nú bara eitthvað sem var tekið hér inn af forvitni,“ bætir hann við og segir að til þessa hafi áhugi á fræjunum verið takmarkaður. „Ég sé ekki að það hafi horfið neitt af viti úr þessu sem við eigum.“ Vilmundur segir hins vegar að einfalt ætti að vera að rækta plöntuna hér. „Þetta er bara ræktað í stofuglugganum,“ segir hann og telur meðferðina ekki ósvipaða og þegar fólk er með tómatplöntur heima hjá sér. Ekki er um það getið í tóbaksvarnarlögum að ræktun á tóbaki sé óheimil. Á Vísindavef Háskólans er ræktun tóbaksplantna þó talin kunna að vera ólögleg og vísað í lög um verslun með áfengi og tóbak þar sem tekið er fram að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skuli einni heimil starfræksla tóbaksgerðar. Ræktun sé mikilvægur þáttur í tóbaksgerðinni og kunni því að vera óheimil, segir í svari Magnúsar Viðars Skúlasonar laganema við spurningunni um hvort hér megi rækta tóbak. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Gerðu árás á stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa í Síberíu Erlent NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Erlent Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát Erlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Ákærð fyrir að kæfa börn sín sem hún sagði hafa látist af völdum bólusetingar Erlent Fleiri fréttir Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Handtekinn vegna líkamsárásar Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Sjá meira