Óútgefin bók Jónínu seld til Þýskalands 13. september 2010 14:00 Jónína Leósdóttir með færeysku útgáfuna af norræna smásagnasafninu Elskar mig, elskar mig ekki. Hún segir Færeyinga yndislegt fólk.
Þýska forlagið Kiepenheuer und Witsch hefur fest kaup á óútgefinni bók Jónínu Leósdóttur. Bókin kemur út í nóvember hér á landi en Þjóðverjarnir hrifust svo af handritinu að þeir ákváðu að eigna sér það strax. Jónína hefur undanfarin þrjú ár gefið út unglingabækur en að þessu sinni fikrar hún sig upp aldursstigann. Sagan Allt fínt…en þú? segir frá því þegar höfuð fjölskyldunnar, pabbinn og afinn, missir eiginkonuna sína. Tveimur mánuðum eftir andlátið dúkkar hann upp með nýja unnustu, mun yngri. Og dætur hans tvær þurfa því bæði að takast á við sorgina og nýju kærustuna hans pabba. Jónína er auðvitað nýkomin heim frá Færeyjum þar sem hún var ásamt eiginkonu sinni, Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í opinberri heimsókn. Heimsóknin vakti nokkuð mikla athygli vegna ummæla þingmannsins Jenis av Rana sem neitaði að sitja til borðs með þeim. Jónína sjálf hefur hins vegar ekkert nema gott um Færeyjar og Færeyinga að segja. „Þetta er alveg rosalega falleg eyja og Færeyingar eru alveg yndislegt fólk enda frændur okkar,“ segir Jónína sem, eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir helgi, tók við færeysku útgáfunni af norræna smásagnasafninu Elskar mig, elskar mig ekki en hún á eimnitt titilsöguna. Jónína segir síðan stefnt að því að kynna hana á bókamessu í Gautaborg á næstunni. Jónína kveðst ekki hafa þurft að setja sig í einhverjar sérstakar stellingar þegar hún skipti úr unglingabókum yfir í sögur af fullorðnum. „Ég hef bara alltaf haft mjög mikinn áhuga á mannlegum samskiptum, allt sem ég skrifa um fjallar um mannleg samskipti,“ segir Jónína. - fgg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira