Lífið

Meinaður aðgangur

the hurt locker Framleiðandi The Hurt Locker má ekki mæta á Óskarsverðlaunahátíðina á sunnudaginn.
the hurt locker Framleiðandi The Hurt Locker má ekki mæta á Óskarsverðlaunahátíðina á sunnudaginn.

Framleiðanda kvikmyndarinnar The Hurt Locker hefur verið meinaður aðgangur að Óskarsverðlaunahátíðinni á sunnudagskvöld eftir að hann braut reglur Óskarsakademíunnar.

Framleiðandinn, Nicolas Chartier, sendi tölvupóst til meðlima akademíunnar þar sem hann hvatti þá til að kjósa The Hurt Locker frekar en Avatar sem bestu myndina.

Fari svo að The Hurt Locker beri sigur úr býtum mun Chartier engu síður fá Óskarsstyttuna afhenta eftir athöfnina. Chartier baðst afsökunar á athæfi sínu og sagðist ekki hafa áttað sig á reglum akademíunnar en það dugði ekki til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.