Börn í leikskólum hafa aldrei verið fleiri 28. apríl 2010 09:32 Aldrei hafa fleiri börn verið í leikskólum hér á landi en í desember í fyrra. Myndin er úr safni.
Í desember 2009 sóttu 18.699 börn leikskóla á Íslandi og hafa þau aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum hefur fjölgað um 421 frá desember 2008 eða um 2,3%. Þessi fjölgun skýrist að hluta til af stærri árgöngum barna á leikskólaaldri auk þess sem sex nýir leikskólar tóku til starfa á árinu. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þá má greina breytingar á viðverutíma barnanna. Fram til ársins 2008 var stöðug aukning á fjölda barna sem dvöldu í leikskólanum í 9 klst. eða lengur. Í desember 2009 hefur þeim börnum fækkað um 230 börn og að sama skapi fjölgar börnum sem dvelja í sjö og átta tíma í leikskólum á hverjum degi.Börnum með erlent móðurmál fjölgar Börnum sem hafa annað móðurmál en íslensku hefur fjölgað ár frá ári frá því að gagnasöfnun Hagstofu Íslands um leikskóla hófst árið 1998. Haustið 2008 fækkaði þeim hins vegar í fyrsta sinn en fjölgar nú aftur haustið 2009 og hafa þau aldrei verið fleiri. Nú eru 1.614 börn í leikskólum skráð með erlent móðurmál eða 8,6% barnanna. Af þeim eru 423 börn sem hafa pólsku sem móðurmál og er það fjölmennasta erlenda tungumálið eins og undanfarin ár. Þá fjölgar börnum með spænsku um 78% og er nú 71 barn í leikskólum sem hefur spænsku sem móðurmál en voru 40 fyrir ári síðan. Börnum sem hafa víetnömsku og ítölsku að móðurmáli fjölgar um helming milli ára.Starfsmenn á leikskólum aldrei verið fleiri Í desember 2009 störfuðu 5.596 starfsmenn í 4.813 stöðugildum við leikskóla á Íslandi og hafa leikskólastarfsmenn aldrei verið fleiri. Á vef Hagstofunnar kemur fram að árið 2008 störfuðu 5.568 starfsmenn í 4.761 stöðugildi við íslenska leikskóla. Starfsmönnum hefur fjölgað um 28 milli ára, sem er 0,5% fjölgun. Þetta er lítil fjölgun miðað við árið á undan þegar starfsfólki fjölgaði um 7,9%. Líkt og áður segir jókst fjöldi leikskólabarna milli áranna 2008-2009 um 2,3% eða 427 börn. Starfsfólki fjölgar því minna en leikskólabörnum. Körlum sem starfa í leikskólum fækkar milli ára. Nú starfa 222 karlar í leikskólum en voru 240 fyrir ári síðan.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni Sjá meira