Lífið

Caine til dularfullu eyjunnar

Michael Caine mun að öllum líkindum leika afa Josh Hutcherson í The Mysterious Island sem er sjálfstætt framhald af Journey to the Center of Earth.
Michael Caine mun að öllum líkindum leika afa Josh Hutcherson í The Mysterious Island sem er sjálfstætt framhald af Journey to the Center of Earth.
Michael Caine á í viðræðum við framleiðendur kvikmyndarinnar The Mysterious Island um að leika afa aðalpersónunnar. Caine, þekktastur fyrir leik sinn í Get Carter, The Dark Knight og nú síðast Inception, er orðinn 77 ára en er enn í fullu fjöri.

The Mysterious Island verður sjálfstætt framhald Journey to the Center of Earth en þar lék Anita „okkar“ Briem eitt aðalhlutverkanna ásamt Brendan Fraiser. Þeim tveim hefur nú verið skipt út en ungstirnið Josh Hutcherson mun áfram leika ævintýrabarnið Sean Anderson. Tökur með Caine fara fram á Havaí og í Norður-Karólínu á næstunni að því er kemur fram á kvikmyndavef Empire.

Þá var tilkynnt fyrir nokkru að Dwayne Johnson, best þekktur sem Rock, myndi leika stórt hlutverk í myndinni. Söguþráðurinn er víst á þá leið að Hutcherson og Rock halda í ferðalag til að leita að afa Hutcherson sem týndist á dularfullri eyju. Leikstjóri verður Brad Peyton en myndin, líkt og sú fyrri, verður öll í þrívídd.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.