Lífið

Stúdentaleikhúsið setur upp Réttarhöld Kafka

Úr Réttarhöldunum.
Úr Réttarhöldunum.

Súdentaleikhúsið frumsýnir í dag leiksýninguna Réttarhöldin en hún byggir á samnefndri skáldsögu eftir Franz Kafka. Leikstjóri er Friðgeir Einarsson.

Hér er jafnframt á ferðinni ein af þekktari sögum höfundarins.

Í leiksýningunni er tekist á við viðfangsefni á borð við sekt og réttlæti, um leið nokkrir af furðulegustu afkimar sálarlífsins eru rannsakaðir, bæði út frá gamansömu sjónarhorni sem og af harmrænni alvöru. Hin eilífa tilvistarkreppa mannsins er hér óumflýjanlega í brennidepli eins og segir í tilkynningu.

Skáldsagan Réttarhöldin heitir á frummálinu Der Prozess og var fyrst gefin út árið 1925 að höfundi látnum, en hún var rituð um 10 árum áður. Sagan þykir skörp ádeila á skrifræði, spillingu og valdníðslu, en býður ekki síður upp á persónulega túlkun og þykir á köflum endurspegla sálarlíf höfundar.

Efni þessarar uppfærslu Stúdentaleikhússins er því tímalaust og á ekki síður við á okkar tímum, hvort heldur sem miðað er við pólitískt ástand samfélagsins eða sálarlíf mannsins.

Í Réttahöldunum segir af Jósef K, aðaldeildarstjóra í banka, sem er handtekinn og - að því er virðist - ákærður fyrir glæp sem hann veit ekki hver er. Í gegnum leit K að kjarna málsins fylgjum við honum um rangala réttvísinar þar sem brátt fer að fjara undan stoðum raunveruleikans.

Leikgerðina byggir á kvikmyndahandriti Harold Pinter, en það var Friðgeir Einarsson sem þýddi og aðlagaði fyrir svið.

Stúdentaleikhúsið er öflugt áhugaleikfélag og setur upp tvær sýningar á hverju ári og fá þar tilvonandi listamenn tækifæri á að þroska hæfileika sína og sýna hvað í þeim býr. Stúdentaleikhúsið fagnaði 80 ára afmæli á seinasta ári, og hefur því verið hluti af íslensku leikhúslífi í langan tíma.

Friðgeir Einarsson útskrifaðist árið 2008 úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Hann hefur siðan starfað með hinum ýmsu sviðslistahópum og sýnt verk bæði hér heima og erlendis. Meðal sýninga sem Friðgeir hefur tekið þátt í eru Húmanímal, Nígeríusvindlið og Ókyrrð. Katrín Gunnarsdóttir hefur einnig starfað með leikhópnum að verkinu en Katrín er menntaður dansari. Tónmynd verksins er í höndum Haralds R. Sverrissonar, tónsmiðs.

Miðasala Stúdentaleikhússins fer fram á heimasíðu www.studentaleikhusid.is eða í síma 843-0151 (Elísa) eða 821-5109 (Hanna)

Almennt miðaverð er 2200 og 1800 fyrir námsmenn.

Sýningarplan:

Frumsýning 13. nóvember kl. 20

2. sýning 16. nóvember kl. 20

3. sýning 19. nóvember kl. 20

4. sýning 19. nóvember kl. 24

5. sýning 24. nóvember kl. 21

6. sýning 27. nóvember kl. 21






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.