Vera tók upp lag í fríinu í París 13. ágúst 2010 08:00 Vera Sölvadóttir, tónlistar- og kvikmyndagerðarkona, tók upp lag með franska tónlistarmanninum Bertrand Georges fyrir stuttu. fréttablaðið/Valli
Vera Sölvadóttir, tónlistar- og kvikmyndagerðarkona, tók nýverið upp lag með franska tónlistarmanninum Bertrand Georges, sem starfar undir nafninu Audible, og verður lagið gefið út á smáskífu innan skamms. „Ég bjó í París á námsárum mínum og var þá í hljómsveit með Bertrand. Hann er með eigin útgáfu og sækist eftir því að vinna með tónlistarmönnum frá hinum ýmsu löndum og taka upp lög sem sungin eru á mismunandi tungumálum. Lagið sem ég tók upp með honum er þó á frönsku, það er ballaða og heitir á íslensku Fuglarnir og Róbert,“ útskýrir Vera. Hún tók upp lagið í síðasta mánuði á meðan hún heimsótti Parísarborg og er lagið þegar fáanlegt á Netinu. Hún segir Bertrand Georges vera nokkuð þekktan tónlistarmann í Frakklandi og hefur hann þegar gefið út nokkrar hljómplötur með tónlist sinni og er ný hljómplata með honum væntanleg innan skamms. Vera segist hafa gaman af því að vinna með öðrum listamönnum að tónlist, en sjálf er hún í tónlistartvíeykinu BB & Blake ásamt leikaranum Magnúsi Jónssyni. „Mér finnst mjög gaman að vinna að tónlist með hinum ýmsu tónlistarsnillingum. Þessa dagana er ég að semja tónlist fyrir stuttmynd ásamt Jarþrúði Karlsdóttur sem er afskaplega gaman,“ segir Vera sem leikstýrir einnig myndinni. Aðspurð segir hún BB & Blake hafa legið í hálfgerðum dvala undanfarið þar sem Magnús er fluttur til Akureyrar vegna vinnu, en hann leikur í The Rocky Horror Picture Show. „Við munum sinna tónlistinni betur þegar ég endurheimti hann í vetur,“ segir Vera glöð í bragði. Hægt er að hlusta á lagið á vefsíðunni www.soundcloud.com/verawonder. -sm
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira