Jói Fel er fyrirmynd Magga Mix 8. apríl 2010 09:30 Magnús Valdimarsson í viðtali hjá piltunum í Harmageddon í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Magnús Valdimarsson, öðru nafni Maggi Mix, hefur slegið í gegn á Netinu með skemmtilegum matreiðslumyndböndum sínum og á nú yfir þrjú þúsund aðdáendur á samskiptasíðunni Facebook. Magnús segist hafa kosið nafnið Maggi Mix því honum hafi þótt nafnið bæði skemmtilegt og grípandi. Í þáttum sínum kennir Magnús fólki að matreiða einfalda og ódýra rétti og sér hann sjálfur um að taka efnið upp og setja á Netið. „Eldamennskan er bara áhugamál og mig langaði að deila nokkrum uppskriftum með landanum. Þetta byrjaði bara með einu myndbandi fyrir þremur vikum sem varð svo vinsælt að ég ákvað bara að halda áfram. Ég fékk póst um daginn frá konu sem er búsett á Nýja-Sjálandi sem hrósaði mér fyrir framtakið og það virkar mjög hvetjandi á mig og fær mig til að vilja halda áfram," útskýrir Magnús. Magnús heimsótti útvarpsmennina Frosta Logason og Þorkel Mána Pétursson í útvarpsþátt þeirra Harmageddon á X-inu í gærdag þar sem hann ræddi við þá um matreiðsluþættina. „Ég hlusta mikið á Harmageddon og finnst þeir mjög skemmtilegir og það var gaman að hitta þá í eigin persónu. Þeir höfðu þó hvorugir prófað að elda neitt eftir mér enn þá, en þeir gera það kannski bráðum," segir Magnús og hlær. Aðspurður segir hann sjónvarpskokkinn Jóa Fel vera í miklu uppáhaldi og segist hann helst horfa á matreiðsluþætti hans. „Mér finnst Jói Fel alltaf vera hress og skemmtilegur og það er gaman að horfa á hans þætti. Hann er samt með mjög flotta rétti sem efnaminna fólk hefur kannski ekki efni á að gera á meðan ég geri einfalda og mjög ódýra rétti," segir Magnús að lokum. - sm
Mest lesið „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Tónlist Framboð án eftirspurnar: Óvinsælustu örframboðin í sögu borgarinnar Lífið Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Menning Sveinn Andri og Vigdís keyptu ótrúlega íbúð á besta stað Lífið Til Íslands fyrir náttúruna en fann ástina og nýja vinnu Lífið Búið spil fimm mánuðum eftir fæðingu dótturinnar Lífið Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Lífið Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Lífið Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Lífið Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Oddvitaáskorunin: Neitar að nota gervigreind Oddvitaáskorunin: Ennþá svekkt með úrslit Eurovision 2010 Búið spil fimm mánuðum eftir fæðingu dótturinnar Oddvitaáskorunin: Liverpool ekki vinsælasta liðið innan flokksins Oddvitaáskorunin: „Alveg óþolandi hvað ég kann illa á klukku“ Oddvitaáskorunin: Hljóp í spreng Sveinn Andri og Vigdís keyptu ótrúlega íbúð á besta stað Oddvitaáskorunin: Grét yfir bókinni í misheppnaðri útilegu Oddvitaáskorunin: Ætlaði til Akureyrar en sneri óvart við í Borgarnesi Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Oddvitaáskorunin: Ron Burgundy sá fyndnasti Oddvitaáskorunin: „Jólasveinn í Jólafsfirði“ Oddvitaáskorunin: „Baunateljarinn“ Framboð án eftirspurnar: Óvinsælustu örframboðin í sögu borgarinnar Oddvitaáskorunin: Streymdi hrotunum beint á Facebook Þessi lönd komust áfram á seinna undanúrslitakvöldi Eurovision Oddvitaáskorunin: Vopnið á Skaganum Oddvitaáskorunin: „Sveitastjórinn“ myndi elta ræturnar Oddvitaáskorunin: Sprittaði Herjólf í Covid Oddvitaáskorunin: Eflaust trúaðri en samflokksmennirnir Oddvitaáskorunin: Gleymdi að bera kaupin undir eiginkonuna Oddvitaáskorunin: Myndi gerast sérfræðingur í dáleiðslu Til Íslands fyrir náttúruna en fann ástina og nýja vinnu Oddvitaáskorunin: Ekki spenntur fyrir hvalveiðum Einar kom öllum á óvart Oddvitaáskorunin: Of margir Liverpool-aðdáendur á listanum Bíður þetta böl lands og þjóðar? Oddvitaáskorunin: Samtalið alltaf hlýrra Sjá meira