Barnamenningarhátíð á nesi og við flóa 20. apríl 2010 09:00 Hátíðahöld barna tengd sumarkomunni eru orðin fastur liður við Faxaflóann með fjölbreyttri dagskrá. mynd listasafn Reykjanesbæjar
Barnamenningarhátíð hófst í gær og fram á sunnudag verður viðamikil dagskrá í gangi um Reykjavík alla, nánast viðstöðulaust frá morgni til kvölds. Er best að líta á vef hátíðarinnar til að sjá hvaða er í gangi: http://barnamenningarhatid.is/dagskra/. Það er víðar en í Reykjavík sem kallað er saman nú í vetrarlok: Listahátíð barna er nú haldin í fimmta sinn í Reykjanesbæ: hún er samvinnuverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra tíu leikskóla Reykjanesbæjar. Hátíðin hefur vaxið og eflst með hverju ári og segja má að hún hafi orðið kveikjan að þeirri stóru barnahátíð sem nú verður haldin í Reykjanesbæ þar sem virðing fyrir börnum og störfum þeirra og þörfum er höfð að leiðarljósi. Yfirskrift listahátíðar barna árið 2010 er Hafið og á öllum leikskólum hafa börnin fræðst um hafið með margvíslegum hætti. Alls kyns listaverk hafa litið dagsins ljós, æfðir hafa verið nýir söngvar um fiska og haf, sjávardýr hafa verið krufin og svona mætti lengi telja. Hápunkturinn er sjálf listahátíðin sem sett verður með formlegum hætti í Duushúsum á morgun, síðasta vetrardag, kl. 10.30. Það er vel við hæfi að sá viðburður verði einnig upphafsatriði Barnahátíðar í Reykjanesbæ. Á listahátíðinni verður leitast við að skapa neðansjávarheim í Listasal með öllum þeim undrum sem þar finnast. Listasmiðja verður starfrækt í Bíósal sem stendur öllum bæjarbúum opin og þar verða einnig myndlistarverk frá öllum leikskólunum. Dagana 23.-30. apríl koma leikskólarnir í heimsókn og standa fyrir stuttri skemmtidagskrá sem er öllum opin. - pbb
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira