Hemmi Hreiðars gripinn á 175 km hraða 25. febrúar 2010 06:30 Hermann er kallaður Herminator af bresku pressunni og steig aðeins of fast á bensíngjöfina eftir sigurleik. Löggan mældi hann á 175 km hraða. „
Þetta er ekki mitt stærsta áhyggjuefni um þessar mundir," segir Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði og leikmaður Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Hann var gripinn af lögreglunni í Bournemouth fyrir of hraðan akstur á A35 Puddletown-afleggjaranum í Dorset. Leyfilegur hámarkshraði þar er 70 mílur, eða 112 kílómetrar á klukkustund, en samkvæmt mælingum lögreglunnar reyndist Hermann vera á 175 kílómetra hraða. Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Bournemouth á þriðjudaginn en Hermann var ekki viðstaddur. Hins vegar mætti lögfræðingur hans á svæðið og lýsti skjólstæðing sinn saklausan. Málið verður tekið fyrir 2. júlí. Hermann var tekinn 3. október, sama dag og Portmouth lagði Úlfana í erfiðum útileik. Þetta var fyrsti sigur liðsins á keppnistímabilinu og Hermann viðurkennir að hafa gleymt sér aðeins í sigurvímunni. „Þetta er ekkert stórmál," segir Hermann en komist héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að hraðaksturinn hafi átt sér stað gæti Hermann misst ökuskírteinið í fjórar vikur og fengið sex punkta. Hermann hefur átt við erfið meiðsl að stríða á yfirstandandi leiktíð en fjárhagslegt ástand félagsins hefur heldur ekki verið upp á marga fiska. Yfirvofandi gjaldþrot hefur hangið eins og draugur yfir liðinu en mál þess ættu að skýrast í þessari viku. Líklegt er að níu stig verði dæmd af liðinu sem þýðir væntanlega að fall úr úrvalsdeildinni er nánast óumflýjanlegt. „Við verðum bara að taka alla leiki sem eftir eru," segir Hermann. - fgg
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira