Draumurinn vakti lukku í Santiago 4. ágúst 2010 08:00 Leikstjórinn Erlendur Sveinsson ásamt skáldinu Thor Vilhjálmssyni. Frumsýningin í Santiago heppnaðist sérlega vel.
Fyrsti myndhlutinn af fimm úr kvikmyndinni Draumurinn um veginn, sem fjallar um 800 km pílagrímsgöngu skáldsins Thors Vilhjálmssonar til Santiago de Compostela á Spáni, var frumsýndur í Santiago-borg á dögunum við mjög góðar undirtektir. „Skipuleggjandinn hjá Santiago-kvikmyndamiðstöðinni, Dimas Gonzáles, sagði að sýningin hefði verið „success“ og gat þess að fjöldi manns hefði komið að máli við sig eftir sýningu til að lýsa yfir ánægju sinni og forvitnast um næstu myndhluta,“ segir Erlendur Sveinsson, leikstjóri myndarinnar. „Við Thor gátum ekki verið viðstaddir og því flutti Dimas ávarp fyrir okkar hönd í upphafi sýningar.“ Erlendur ræddi einnig við annan mann, Englendinginn David Francis, sem kemur við sögu í myndinni og hann var gríðarlega sáttur við frumsýninguna. „Hann sagðist hafa gleymt að segja mér frá því að hann starfaði sem pródúsent á BBC í 20 ár við að framleiða alls konar heimildarmyndir. Hann naut þess að horfa í 106 mínútur og vildi hefja myndina á stall sem eitt af því albesta sem hann hefði séð.“ Þessi fyrsti myndhluti af Drauminum um veginn heitir Inngangan og fjallar um inngönguna í heim fólksins sem gengur eftir pílagrímsveginum í leit að sjálfu sér. Erlendur vonast til að sýna myndina hér á landi í haust og vonast einnig til að sýna hina myndhlutana erlendis síðar meir. Hann er þegar búinn að gera enska útgáfu af fyrsta hlutanum og vonast til að koma henni að á kvikmyndahátíðum erlendis. - fb
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira